fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 23. júní 2025 16:23

Sigurður Fannar Þórsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Fannar Þórsson hefur verið fundinn sekur um manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa banað 10 ára dóttur sinni, að Hraunhólum við Krýsuvíkurveg, skammt vestan við Vatnsskarðsnámur, haustið 2024.

Sigurður banaði dóttur sinni með því að slá hana margoft í höfuðið með hamri.

Var hann dæmdur í 16 ára fangelsi.

Sigurður var auk þess ákærður og sakfelldur fyrir vörslu fíkniefna. Fram kemur í dómnum að hann gekkst óbeint við því að hafa orðið dóttur sinni að bana með hamri en játaði ekki að hafa haft ásetning um að myrða hana.

Forsaga málsins er sú að sunnudaginn 15. september 2024 fóru Sigurður og dóttir hans í bíl frá heimili dótturinnar og móður hennar, sem fór með forsjá stúlkunnar. Eftir viðkomu á bensínstöð þar sem Sigurður var með gám á leigu, og á vinnustað hans, fóru feðginin í Krýsuvík þar sem Sigurður hugðist brjóta berglög í Krýsuvíkurhrauni og sýna dóttur sinni. Farsími Sigurður var staðsettur vestan við Hraunhól laust eftir kl. 15 þennan dag.

Sagðist hafa gert eitthvað mjög slæmt

Kl. 18:13 hringdi hann í Neyðarlínuna og óskaði eftir aðstoð lögreglu að Vatnsskarðsnámum. Sagðist hann í símtalinu hafa gert eitthvað „mjög slæmt“, meitt einhvern sem væri dáinn inni í hrauni. Sagðist hann hafa barið viðkomandi með vopni og tilgreindi dóttur sína.

Sigurður var handtekinn á vettvangi innan við hálftíma eftir símtalið í Neyðarlínuna. Veitti hann enga mótspyrnu við handtökuna. Þar sem hann hafði skorið sig með dúkahníf í fingur var hann fluttur á slysamóttöku og á leiðinni þangað sagði hann lögreglumanni frá því að hann hefði banað dóttur sinni með hamri.

Sagðist ekki vita ástæðuna

Sigurður sagðist fyrir dómi ekki hafa hugmynd um hvers vegna hann drap dóttur sína. Hann sagði: „Þetta væri það síðasta sem ég myndi vilja gera við litla engilinn minn.“

Kemur jafnframt fram í dómnum að hann stríddi við svefnleysi dagana fyrir ódæðið og var uppfullur af ofsóknarbrjálæði og ranghugmyndum. Upplifði hann yfirþyrmandi vondar minningar úr barnæsku sem gerðu hann reiðan og ofsahræddan.

Sakhæfur

Sigurður hefur glímt við geðræn vandamál en hann var engu að síður talinn sakhæfur samkvæmt mati þriggja geðlækna, sem töldu að það bæri að refsa honum fyrir ódæðið.

Auk 16 ára fangelsis var Sigurður dæmdur til að greiða móður stúlkunnar 5 milljónir króna í miskabætur og til að greiða tæpar 12 milljónir króna í sakarkostnað.

Í dómi Héraðsdóms Reykjaness er farið í gegnum rannsókn málsins, sem og skýrslutökur fyrir dómi. Dóminn má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Rússar óttast nýja drónaárás – Færa herflugvélar og gera byrgi

Rússar óttast nýja drónaárás – Færa herflugvélar og gera byrgi
Fréttir
Í gær

Ingibjörg Sólrún: „Hugarheimur vænisjúkra hefnigjarnra valdakarla er óskiljanlegur“

Ingibjörg Sólrún: „Hugarheimur vænisjúkra hefnigjarnra valdakarla er óskiljanlegur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir snjóflóðin árið 1995 og mál sem snúa að börnum erfiðust á ferlinum – „Hvatt til þess að að fólk leiti sér aðstoðar fagfólks“

Segir snjóflóðin árið 1995 og mál sem snúa að börnum erfiðust á ferlinum – „Hvatt til þess að að fólk leiti sér aðstoðar fagfólks“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Magga Stína svarar Rósu fullum hálsi: „Annað hvort segir þú viljandi ekki satt og rétt frá eða þú varst ekki á staðnum”

Magga Stína svarar Rósu fullum hálsi: „Annað hvort segir þú viljandi ekki satt og rétt frá eða þú varst ekki á staðnum”
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Rannsakað hvort feðginin hafi verið stungin meðan þau sváfu

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Rannsakað hvort feðginin hafi verið stungin meðan þau sváfu