fbpx
Miðvikudagur 15.október 2025
Fréttir

Pantaði sjúkrabíl í sex skipti á hálfu ári en borgaði ekki – Hundeltur af Slökkviliðinu

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 15. október 2025 17:30

Það er ekki ókeypis að hringja á sjúkrabíl. Mynd/Rauði krossinn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur stefnt pólskum manni á fertugsaldri vegna sex flutninga með sjúkrabíl á aðeins hálfu ári. Samkvæmt stefnunni er ekki vitað hvar hann er niðurkominn.

Stefnan var birt í Lögbirtingablaðinu í dag. Er það Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins með Heiðu Björg Hilmilsdóttur, borgarstjóra, sem fyrirsvarsmann sem stefnir 37 ára gömlum pólskum manni sem aldrei hefur haft lögheimili á Íslandi.

Er þess krafist að maðurinn greiði skuld upp á rúmlega 344 þúsund krónur ásamt dráttarvöxtum auk málskostnaðar.

Kemur fram að maðurinn hafi óskað eftir þjónustu sjúkrabíls í sex skipti á aðeins hálfu ári, það er frá júlí til desember árið 2024. Síðasta skiptið var á gamlársdag. Fyrir hvern flutning var hann rukkaður um rúmar 57 þúsund krónur en greiddi ekki.

Ítrekaðar innheimtutilraunir

„Skuld þessi hefur ekki fengist greidd þrátt fyrir ítrekaðar innheimtutilraunir. Af þeim sökum er stefnanda nauðsynlegt að höfða mál til greiðslu hennar,“ segir í stefnunni.

Þar sem maðurinn hefur aldrei haft lögheimili á Íslandi er stefnan birt í Lögbirtingablaðinu. Ekki er vitað hvar hann býr. Er skorað á hann að mæta þegar málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 27. nóvember næstkomandi.

„Verði ekki sótt þing af hálfu stefnda við þingfestingu og fyrirtöku málsins getur stefndi átt von á að stefnukröfurnar verði gerðar aðfararhæfar gagnvart sér með áritun eða dómi,“ segir í stefnunni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Stórtækur áfengisþjófur sakfelldur á Austurlandi

Stórtækur áfengisþjófur sakfelldur á Austurlandi
Fréttir
Í gær

Íslandsbanki vann stóra vaxtamálið að hluta en tapaði líka – Breki lýsir yfir sigri

Íslandsbanki vann stóra vaxtamálið að hluta en tapaði líka – Breki lýsir yfir sigri
Fréttir
Í gær

Liðskonur Pussy Riot tjá sig um brottreknu tvíburana og ógnarstjórn Pútíns

Liðskonur Pussy Riot tjá sig um brottreknu tvíburana og ógnarstjórn Pútíns
Fréttir
Í gær

Aldís hefur verið beitt grófu stafrænu ofbeldi í 10 mánuði – „Ég vil bara fá líf mitt til baka. Mig langar bara að elda kvöldmat fyrir börnin mín “

Aldís hefur verið beitt grófu stafrænu ofbeldi í 10 mánuði – „Ég vil bara fá líf mitt til baka. Mig langar bara að elda kvöldmat fyrir börnin mín “