Þar greinir Sigmar frá því að nýjar fjárheimildir munu renna til SÁÁ, Krýsuvíkur, Hlaðgerðarkots og fleiri úrræða sem verður til þess að ekki þarf að loka þeim yfir sumarið.
Í grein sinni bendir Sigmar á að eftir kosningarnar 2021 hafi þáverandi ríkisstjórn verið með það á forgangslistanum að fjölga ráðherrastólum með tilheyrandi kostnaði.
„Það hefði því ekki átt að koma neinum á óvart þegar ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins lét það verða sitt fyrsta verk fyrr á þessu ári að fækka ráðuneytum aftur og spara með því 350 milljónir króna á ári,“ segir hann og bætir við að vissulega sé þetta ekki há upphæð í stóra samhenginu en skipti þó máli.
„Þegar við förum betur með almannafé skapast traust og svigrúm til að styrkja kerfið þar sem þörfin er brýnust. Við getum til dæmis lagt málin þannig upp að með þessari einföldu aðgerð hafi ný ríkisstjórn tryggt að bráðnauðsynleg meðferðarúrræði verði opin í sumar, ólíkt því sem gerst hefur undanfarin ár,“ segir Sigmar og heldur áfram:
„Minningin um lokunina síðasta sumar er enn í fersku minni. Einstaklingar sem stigu erfið skref og leituðu sér hjálpar fengu skilaboð um að hringja aftur „eftir frí“. Heilu fjölskyldurnar fóru inn í sumarið í óvissu og það sem er alvarlegast, dauðsföll má rekja til þessa sumarlokana. Það er óendanlega sorglegt og segir allt um hversu mikið er í húfi.“
Sigmar segir að ný ríkisstjórn hafi nú tryggt sumaropnun þessara mikilvægu úrræða.
„Fíkn tekur sér nefnilega ekki frí; kvíði og þunglyndi fylgja hvorki dagatali né veðurspá. Heilbrigðiskerfi sem lokar vegna rangra ákvarðana sendir kolröng skilaboð. Slík skilaboð munum við ekki senda,“ segir Sigmar en sem fyrr segir munu nýjar fjárheimildir renna til SÁÁ, Krýsuvíkur, Hlaðgerðarkots og fleiri úrræða.
„Göngudeild Landspítalans fær aukið bolmagn; Laufeyjarteymið, Ylja og Frú Ragnheiður geta tekið á móti fleirum. Biðlistar styttast og órofin þjónusta léttir á bráðaþjónustunni, dregur úr kostnaði vegna langvarandi veikinda og veitir fólki von þegar mest á reynir. Þetta er skynsamleg nýting fjármuna. Að færa fé frá efsta lagi stjórnkerfisins yfir í úrræði sem bjarga mannslífum. Þannig sýnum við að orð og verk haldast í hendur,“ segir Sigmar sem boðar svo frekari aðgerðir.
„Næstu skref verða að styrkja forvarnir, efla eftirfylgni og tryggja að fólk falli ekki á milli kerfa. Fjárfesting í heilbrigðismálum er ekki útgjaldavandi heldur arðbær ákvörðun um mannauð þjóðarinnar. Þegar fólk horfir til okkar stjórnmálamannanna þarf það að fá á tilfinninguna að dyrnar standi opnar, líka í júlí.“