fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Fréttir

Heiða opnaði sig um æskuna í ræðu á Alþingi – „Saga mín er birtingarmynd úrræðaleysis“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. júní 2025 10:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég stend hér í dag með mína reynslu, stend hér og kalla eftir breytingum,“ sagði Heiða Ingimarsdóttir, varaþingmaður Viðreisnar, í ræðu undir dagskrárliðnum störf þingsins á Alþingi í gær.

Þar opnaði Heiða sig um æsku sína og önnur börn sem í dag eru í sambærilegri stöðu og hún var í þegar hún var barn. Segir hún að saga hennar sé birtingarmynd úrræðaleysis.

„Ég ólst ekki upp á heimili þar sem ég leið skort eða var svöng þótt oft hafi þurft að horfa í hverja krónu. Á mínu heimili stundaði fólk vinnu og á yfirborðinu var allt með felldu. Ég mætti í skóla, fékk að borða og fötin mín voru hrein. Saga mín er þó flóknari en svo. Ég var fósturbarn,“ sagði hún og bætti við að foreldrar hennar hafi þurft leiðsögn og heimilið hafi um skeið verið komið í mikla klemmu.

„Ég var vistuð á Stuðlum, komið fyrir hjá vandalausum og hjá móðursystur minni. Kerfið greip mig en það greip mig ekki fyrr en eftir ítrekaðar tilkynningar frá kennurum, foreldrum vina og öðrum í samfélaginu. Ég var ekki vistuð á Stuðlum vegna neyslu heldur er saga mín birtingarmynd úrræðaleysis,“ sagði hún og hélt áfram:

„En svo stend ég hér í dag og langar að trúa því að 25 árum síðar sé kerfið betur í stakk búið til að hlúa að börnum eins og mér, að úrræðin séu fleiri, að börn í vanda séu gripin fyrr. Ég horfi á nýja kynslóð ungmenna í dag, börn í þessum sömu sporum, foreldra sem elska börnin sín og sinna grunnþörfum þeirra en sjá ekki eða geta ekki tekist á við vanda þeirra, ná ekki að fóta sig og hafna jafnvel hjálp frá kerfi sem hefur ekki burði til að bregðast við.“

Heiða sagði að vanræksla birtist ekki bara í formi neyslu eða ofbeldis heldur einnig í úrræðaleysi.

„Við erum að bregðast þessum fjölskyldum og við erum að bregðast þessum börnum. Þegar yfirvöld hafa hvorki úrræði né lagastoð til að grípa inn í áður en illa fer þá er það líka vanræksla. Við vitum hvernig þetta endar. Við höfum séð það of oft. Ég hef séð það of oft,“ sagði Heiða sem endaði ræðu sína á þessum orðum:

„Ég stend hér í dag með mína reynslu, stend hér og kalla eftir breytingum. Ég kalla eftir úrræðum í þeirri einlægu von að þau börn sem þurfa á aðstoð í dag þurfi ekki að standa hér að öðrum 25 árum liðnum og benda á sama úrræðaleysið og ég upplifði. Börnin okkar eiga betra skilið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“
Fréttir
Í gær

Pútín og nánustu samstarfsmenn ósammála um Úkraínu

Pútín og nánustu samstarfsmenn ósammála um Úkraínu
Fréttir
Í gær

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu
Fréttir
Í gær

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk
Fréttir
Í gær

Björgólfur Thor rýfur þögnina og sakar RÚV um rangfærslur – „Misvísandi og ærumeiðandi“

Björgólfur Thor rýfur þögnina og sakar RÚV um rangfærslur – „Misvísandi og ærumeiðandi“
Fréttir
Í gær

Sanna skýtur á Morgunblaðið – „Þykir mér miður að sjá að verið sé að draga upp mynd af einhverju sem á við engin rök að styðjast“

Sanna skýtur á Morgunblaðið – „Þykir mér miður að sjá að verið sé að draga upp mynd af einhverju sem á við engin rök að styðjast“