Séra Svavar Alfreð Jónsson, prestur á Akureyri, bendir á að óheimilt sé að nota íslenska fánann sem einkamerki einstaklinga, félaga eða stofnana. Kynþáttahatarar hafi fylkt liði undir logandi krossum og geri enn.
„Til eru lög og reglur um notkun og gerð íslenska fánans. Samkvæmt þeim er til dæmis óheimilt að nota hann sem „einkamerki einstaklinga, félaga eða stofnana” eins og það er orðað í Lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið,“ segir Svavar Alfreð í færslu á samfélagsmiðlum.
Umræða hefur verið um fánann vegna notkunar hans á mótmælum gegn hælisleitendum á Austurvelli um helgina. Þingmaðurinn Ása Berglind Hjálmarsdóttir gagnrýndi það að hópurinn hafi notað íslenska fánann því að fáninn væri ekki merki þess sem hann boðaði.
Séra Svavar Alfreð nefnir krossinn í íslenska fánanum sérstaklega í færslu sinni og merkingu hans.
„Skiptar skoðanir geta verið um hvað fáninn merki. Krossinn í fána Íslands og annarra þjóða má líka skilja með mörgum hætti,“ segir hann. „Kynþáttahatarar hafa fylkt liði undir logandi krossum og gera enn. Nasistar hylltu sérstaka gerð þessa útbreidda tákns, hakakrossinn. Stríð hafa verið háð í nafni krosstáknsins. Fyrir mér og mörgum öðrum bendir krossinn fyrst og fremst á kenningar Jesú Krists.“
Segir hann brýnt að við minnumst þeirra orða hans að allt sem við gerðum einum hans minnstu bræðra, gerum við honum.
„Þar samsamar Jesús sig þeim þjáðu, þeim svöngu, þyrstu og heimilislausu. Við þurfum ekki að sækja Guð ofan. Jesús birtir okkur þann Guð sem er í bræðrum okkar og systrum, nær og fjær,“ segir hann.