fbpx
Þriðjudagur 26.ágúst 2025
Fréttir

Stefán Blackburn og Gabriel Douane í blóðugum slagsmálum á Litla-Hrauni – Fangaverðir treystu sér ekki til að stíga inn í átökin

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 1. maí 2025 19:45

Myndin er samsett. Stefán Blackburn er til vinstri og Gabríel Douane til hægri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt heimildum DV úr nokkrum áttum lentu fangarnir Stefán Blackburn og Gabríel Douane Boama í heiftarlegum slagsmálum inni á fangaklefa á Litla-Hrauni fyrr í vikunni.

Tilefni átakanna voru óuppgerð persónuleg mál milli þeirra, sem DV hefur ekki nánari upplýsingar um. Átökin voru svo harkaleg að fangaverðir á vakt á ganginum treystu sér ekki til að grípa inn í fyrr en þeim hafði borist liðsauki.

Samkvæmt heimildarmönnum DV fór Stefán laskaðri út úr hátökunum en Gabríel en hlúa þurfti að sárum beggja. Átökin voru blóðug en áverkar voru þó ekki alvarlegri en svo að mennirnir eru í einangrun á Litla-Hrauni núna en ekki á sjúkrahúsi. Hlúð er að Stefáni í einangruninni en óvíst er hvort hlúa þurfi að Gabríel.

Stefán er sakborningur í Gufunesmálinu

Stefán Blackburn, sem á að baki langan brotaferil, er einn þriggja sakborninga sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á láti Hjörleifs Hauks Guðmundsson, 65 ára manns frá Þorláksöfn, sem lést þann 10. mars eftir að hafa fundist þungt haldinn í Gufunesi. Bar hann merki mikilla misþyrminga. Mennirnir sem misþyrmdu honum  – og Stefán er talinn vera einn þeirra – kúguðu um þrjár milljónir króna út úr Hjörleifi.

Gæsluvarðhaldsúrskurður þriggja sakborninga í málinu rennur út 7. maí en miklar líkur eru á því að gæsluvarðhaldið verði framlengt.

Gabríel hefur reynt að snúa við blaðinu

Gabríel Douane Boama afplánar nokkra dóma á Litla-Hrauni. Hann var síðast í fréttum sumarið 2024 er hann lenti í harkalegum átökum við fangaverði á Litla-Hrauni. Skömmu áður var Gabríel í einlægu viðtali við DV þar sem hann lýsti meðal annars tilraunum sínum til að snúa við blaðinu og byggja upp líf sitt, en hann hafði þá, að eigin sögn, verið frá neyslu fíkniefna í um fimm mánaða skeið og mat edrúmennskuna mikils. Í viðtalinu kvartaði Gabríel undan framkomu fangavarða við sig og viðurkenndi að hann glímdi við reiðivandamál.  „Ég er með reiðivandamál og ef það er alltaf verið að espa mig upp þá fæ ég ekki sjensinn til að bæta mig. Ég er að reyna að komast út í lífið og standa mig,“ sagði hann meðal annars auk þess að greina frá því að hann hefði misst tvo vini sína úr ofneyslu, sem hafi haft mikil á áhrif á hann. Viðtalið má lesa hér.

Fangelsismálastjóri tjáir sig ekki

Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri, segir í svari við fyrirspurn DV, að hann tjái sig ekki um einstök mál og upplýsingar um einangrunarvist séu málefni sem hann fjalli ekki um á opinberum vettvangi. Birgir segir:

„Hvort einhver eða einhverjir sæti einangrun vegna atvika innan veggja fangelsanna er innra öryggismál sem ég get því miður ekki fjallað um á opinberum vettvangi, nema eitthvað sérstakt sé.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Vill að Silja Bára verði rekin: „Hún hefur haft næg tækifæri til að tjá sig en þegir bara“

Vill að Silja Bára verði rekin: „Hún hefur haft næg tækifæri til að tjá sig en þegir bara“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Rafmagnað andrúmsloft í Héraðsdómi Suðurlands – Stefán svaraði fyrstur til saka fyrir morðið á Hjörleifi

Rafmagnað andrúmsloft í Héraðsdómi Suðurlands – Stefán svaraði fyrstur til saka fyrir morðið á Hjörleifi
Fréttir
Í gær

Mikil reiði eftir að dönsk yfirvöld tóku nýfædda dóttur af grænlenskri móður á grundvelli umdeilds prófs

Mikil reiði eftir að dönsk yfirvöld tóku nýfædda dóttur af grænlenskri móður á grundvelli umdeilds prófs
Fréttir
Í gær

Ekkert foreldri hafi óskað eftir flutningi barns síns af Múlaborg

Ekkert foreldri hafi óskað eftir flutningi barns síns af Múlaborg
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úkraínsk móðir á Íslandi stefnir barnsföður sínum fyrir héraðsdóm en segir hann vera í felum

Úkraínsk móðir á Íslandi stefnir barnsföður sínum fyrir héraðsdóm en segir hann vera í felum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri ósáttur við hugtakið hinsegin fólk og segir ekkert bakslag í gangi

Snorri ósáttur við hugtakið hinsegin fólk og segir ekkert bakslag í gangi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkt að byggja fjölbýlishús í Reykjanesbæ nærri mögulegu flóðasvæði

Samþykkt að byggja fjölbýlishús í Reykjanesbæ nærri mögulegu flóðasvæði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vandræðahús í Vestmannaeyjum rifið – „Nánast óviðgerðarhæft eftir margra ára vanhirðu“

Vandræðahús í Vestmannaeyjum rifið – „Nánast óviðgerðarhæft eftir margra ára vanhirðu“