

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér nýja tilkynningu með frekari upplýsingum um hnífsstunguárásina sem framin var á Kjalarnesi á nýársnótt en einn maður var í lífshættu vegna hennar. Í tilkynningunni segir að uppruna árásarinnar megi rekja til ágreinings sem upp kom á milli hóps manna.
Í tilkynningunni segir að þrír séu í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á árásinni sem framin hafi verið í húsi á Kjalarnesi á nýársnótt. Tilkynning um málið hafi borist lögreglu skömmu fyrir klukkan eitt í nótt og hafi hún verið með mikinn viðbúnað vegna þessa. Enn fremur segir að svo virðist sem ósætti og ágreiningur hafi komið upp hjá mönnum í húsinu og í framhaldinu hnífi verið beitt. Nokkrir hafi hlotið áverka, en einn þó sýnu versta og sé sá alvarlega slasaður eftir atlöguna.
Í tilkynningu lögreglunnar í morgun kom hins vegar fram að maðurinn hafi verið í lífshættu en miðað við þessa nýju tilkynningu virðist sem að ástand hans hafi eitthvað skánað en í frétt mbl.is kom fram að hann hefði gengist undir aðgerð.
Að lokum segir í nýrri tilkynningunni að hinir handteknu séu allir á fimmtugsaldri, rétt eins og sá sem slasaðist mest. Enn fremur segir að við aðgerðirnar á Kjalarnesi í nótt hafi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra og ekki sé hægt að greina frekar frá málinu að svo stöddu.