fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
Fréttir

Norska leyniþjónustan hefur komið upp um 12 ára börn sem hugðu á hryðjuverk

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 13. febrúar 2024 07:30

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Norska leyniþjónustan PST segir að barnungir drengir snúist til öfgahyggju við að komast í snertingu við áróður öfgahægrimanna og við að sjá ofbeldisefni á Internetinu.

Á undanförnu árum hefur PST komið upp um rúmlega tíu börn, á aldrinum 12 til 15 ára, sem hugðu á hryðjuverk í Noregi.

Linn Havnelid, forstjóri hryðjuverkadeildar PST, skýrði frá þessu í samtali við Dagbladet. Hún sagði að sá yngsti, sem PST hefur komið upp um, sé 12 ára norskur drengur sem aðhylltist öfgahægrimennsku.

Hún vildi ekki skýra nánar frá drengnum eða hverskonar árásir PST hefur komið í veg fyrir.

Hún vísaði því á bug að það sé aðeins í borgum landsins sem ungmenni snúist til öfgahyggju. Yfirleitt komist þau í snertingu við öfgahyggju á Internetinu og laðist að henni.

„Við sjáum að ungir drengir snúast til öfgahyggju án þess að vera í sambandi við aðra. Þeir verða hluti af áróðri öfgahægrimanna og ofbeldishyggju sem þeir finna á Internetinu,“ sagði hún.

Hún sagði að börnin, sem PST hefur komið upp um, hafi skipulagt hryðjuverkin í lokuðum og dulkóðuðum spjallhópum á Internetinu.

Hún sagði einnig að drengirnir eigi það oft sameiginlegt að falla illa í hóp og glíma við andleg veikindi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir ábendingahnapp hjá Borgarholtsskóla notaðan til að koma á framfæri nafnlausu níði um kennara

Segir ábendingahnapp hjá Borgarholtsskóla notaðan til að koma á framfæri nafnlausu níði um kennara
Fréttir
Í gær

Tölvuþrjótum tókst að afrita gögn – Hafa ekki birt þau eða hótað birtingu

Tölvuþrjótum tókst að afrita gögn – Hafa ekki birt þau eða hótað birtingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fékk hroll þegar hún las bréf MAST um mál hundsins Úffa – „Stofnanir verða að sýna mannúð“

Fékk hroll þegar hún las bréf MAST um mál hundsins Úffa – „Stofnanir verða að sýna mannúð“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Margeir og Kitty til liðs við KAPP

Margeir og Kitty til liðs við KAPP
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bjóða fasteignaeigendum að fá heilt ár af leigutekjum greitt út strax

Bjóða fasteignaeigendum að fá heilt ár af leigutekjum greitt út strax