fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

„Þú ert nú meiri við­bjóðurinn, trúi ekki að þú sért það besta sem Ís­land getur boðið“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 6. mars 2023 11:26

Þórólfur Guðnason.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á meðan Covid-faraldurinn gekk yfir samfélagið og harðar samkomutakmarkanir voru í gildi þá fékk þríeykið svonefnda yfir sig alvarlegar hótanir frá fólki sem mislíkaði samkomutakmarkanirnar. Þetta kemur fram í heimildarþáttaröðinni Stormur sem RÚV hefur sýnt undanfarin sunnudagskvöld.

Fréttablaðið tekur þetta saman en þeir Víðir og Þórólfur sögðu í þættinum þeir hefðu meðal annars áhyggjur af því að vera skotnir í gegnum eldhúsgluggann heima hjá sér. Heimili þríeykisins voru vöktuð og þar uppsett kerfi sem var bein­tengt lög­reglu. Þór­ólfur segir meðal annars að í eitt skiptið hefði hann vaknað um miðja nótt við sím­tal frá lög­reglu og voru þá sér­sveitar­menn með hríð­skota­byssur og vasa­ljós í garðinum.

Þórólfur sýndi dæmi um ruddaleg og ógnandi skilaboð sem hann fékk í gegnum Facebook Messenger:

„Drullastu til að opna líkams­ræktar“ 

„Þú ert nu meiri við­bjóðurinn, trúi ekki að þú sért það besta sem Ís­land getur boðið á þessum tíma. Allt sem þú segir er nú meiri fkn drullan.“

„Fokking leður­homma­draslið þitt. Dreptu þig. Eina sem ég vil er að fara á skíði.“

Þórólfur greinir síðan frá því að með eftirfarandi skilaboðum hafi birst símanúmer hans sem og heimilisfang og nöfn sona hans:

„Skíta­hrappurinn þinn. Hvernig dettur þér í hug að loka landinu, litli skíturinn þinn? Settu það á kassann að það vilja fjöru­tíu sex­tán ára krakkar lemja þig.“

Rætt var við eiginkonu Þórólfs, Söru Hafsteinsdóttur, sem lýsir því að hún hafi fengið mjög þreytandi símtöl í heimilissímann vegna starfa Þórólfs. Þurfti hún stöðugt að útskýra fyrir fólki að hún ynni ekki hjá Landlæknisembættinu og gæti ekki losað fólk úr sóttkví. Endaði það með því að þau sögðu símanum upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Í gær

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum
Fréttir
Í gær

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum
Fréttir
Í gær

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slys við Dalveg: Bíl ekið inn í skrifstofu Útlendingastofnunnar

Slys við Dalveg: Bíl ekið inn í skrifstofu Útlendingastofnunnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni