fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Yfirlæknir bráðamóttöku segir rafskútuslysum fækka með Borgarlínu – „Samfélagið lærði á bílinn“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 2. nóvember 2023 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Umtalsverður hluti rafskútuslysa verða vegna ölvunar, þar er vandamálið áfengi, ekki rafskútan. Ég sé mörg sem slasa sig af því að ganga niður tröppur undir áhrifum áfengis, það er samt engin ástæða til að banna tröppur,“ 

segir Hjalti Már Björnsson yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans í pistli sínum. 

Slysatíðni á rafskútum hefur verið í umræðu undanfarið og vilja margir banna þær alfarið. Hjalti Már vill ekki ganga svo langt, en segir að finna þurfi leiðir til að draga úr rafskútuslysum og leggur hann áherslu nokkur atriði í pistlinum. 

Hjalti Már segir fjölda banaslysa í umferðinni á Íslandi hafa náð hámarki árið 1977 þegar 33 létust. „Síðan þá hefur fjöldi bíla og ekinna kílómetra á ári margfaldast, þrátt fyrir það hefur banaslysum fækkað niður í brot af því sem áður var. Samfélagið lærði á bílinn og þannig náðist slysatíðnin talsvert niður þó hún sé enn há. Hið sama er líklegt að gerist með rafskútur,“ segir Hjalti Már.

Takmarkaðar almenningssamgöngur í boði

Hann segir eina helstu ástæðuna fyrir því að rafskútur eru nauðsynleg viðbót við samgöngur í þéttbýli á Íslandi vera hversu takmarkaðar almenningssamgöngur eru í boði. „Því held ég að sú bylting sem verður með tilkomu Borgarlínu muni fækka þessum slysum. Flýta þarf uppbyggingu Borgarlínunnar og annarra almenningssamgangna.“

Hann bendir á að þau sem lenda í slysum á rafskútum valdi sjaldnast áverkum á öðrum, ólíkt ölvunarakstri á bíl. „Því er það mín skoðun að ekki sé réttlætanlegt að láta sömu refsingu liggja við ölvunarakstri bíls og að vera ölvaður á rafskútu. Þegar fólk hefur lent í líkamstjóni vegna rangra ákvarðana undir áhrifum áfengis ætti að styðja þau, ekki bæta við refsingu.“

Hjalti Már telur að takmarka eigi hraða á öllum farartækjum þannig að ekki sé hægt að aka þeim hraðar en leyft er á hverjum stað. Segir hann að mesti ávinningurinn af því væri að hraðatakmarka bílana.

Segir hann að alltaf þurfi að skoða samgöngumál í víðu samhengi. „Fyrir utan hræðilega slysatíðni vegna bíla veldur sá sem notar bíl sjálfum sér heilsutjóni með hreyfingarleysi en sjálfum sér og öðrum heilsutjóni með loftmengun. Áætlað er að tugir einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu látist á hverju ári vegna loftmengunar og grípa þarf til róttækra aðgerða til að auka loftgæði, rétturinn til að anda að sér hreinu lofti á að vera sterkari en réttur fólks til að keyra. Því verður að standa vörð um aðra samgöngumáta en bílinn, þar með talið rafskútur sem valda nánast engri mengun. Bílar eru nauðsynlegir í dreifbýli og þeim sem búa við hreyfiskerðingu. Í þéttbýli eru almenningssamgöngur og reiðhjól besti samgöngumátinn.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd