Á laugardaginn funduðu yfirmenn NATO-herjanna í Noregi, meðal annars til að ræða stöðuna hvað varðar skotfæri og vopn. Það bætir ekki stöðuna að skotfæri og hergögn hafa almennt hækkað í verði og eru enn að hækka.
Rob Bauer, hollenskur aðmíráll og formaður hermálanefndar NATO, sagði að þessi þróun geri tilraunir ríkjanna til að auka öryggi erfiðar.
„Eins og staðan er núna, þá borgum við sífellt meira fyrir sömu hlutina. Það þýðir að við getum ekki tryggt að aukin útgjöld til varnarmála auki öryggið,“ sagði Bauer á laugardaginn að sögn TV2.
Lars Bangert Struwe, forstjóri hugveitunnar Atlantsammenslutningen, sagði í samtali við TV2 að sú staðreynd að formaður hermálanefndar NATO skýri frá skorti á skotfærum sýni hversu alvarleg staðan er.
Hann sagðist sjálfur hafa haft áhyggjur af litlum skotfærabirgðum evrópskra herja árum saman. „Við töldum að heimurinn væri friðsamur og svo er hann það bara ekki og við erum ekki undir það búin,“ sagði hann.
Hann sagði að þrjár ástæður séu fyrir því að skotfæri séu að verða af skornum skammti:
Stríðið í Úkraínu.
Evrópa og Bandaríkin eru ekki undir stríð búin.
Væntingar um að hægt sé að fá skotfæri afhent þegar þörf er fyrir þau.