fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Seiglurnar sigla fyrir hönd Íslands

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 9. september 2023 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lady Liberty Regatta er ein stærsta keppni heims í siglingum sem eingöngu er ætluð konum. Íslenska liðið Seiglurnar tekur þátt í keppninni sem verður haldin nú um helgina af Manhattan Yacht Club í New York. “Við sigldum saman árið 2021 í kringum Ísland og vorum fyrsta íslenska kvennaáhöfnin til að gera það. Okkur langaði til að sýna öðrum konum að það væri pláss fyrir konur í siglingum og það voru allt í allt 35 konur sem tóku þátt í þessari hringsiglingu. Það var ótrúlega skemmtilegt ferðalag og eftir það langaði okkur að gera meira. Á síðasta ári ákváðum við að stofna keppnisáhöfn sem eingöngu er skipuð konum og keppa á mótunum sem haldin eru hérna heima. Svo kom þetta tækifæri og við settum allt í gang og nú munum við sigla undir íslenska fánanum við Frelsisstyttuna í New York,“ segir Sigríður Ólafsdóttir skipstjóri liðsins. Lady Liberty Regatta var fyrst haldin árið 1989 undir nafninu Betsy Ross Bowl og var eingöngu opin bandarískum áhöfnum. Árið 2019 var keppninni breytt, hún stækkuð og liðum frá öðrum þjóðum boðin þátttaka. Nú eru kvennalið frá 10 þjóðlöndum skráð til keppni ásamt fjölda liða frá Bandaríkjunum. Keppt verður á J24 bátum en þannig bátur er ekki til á Íslandi. ,,Það var pínu vandamál fyrir okkur að taka þessu boði því við höfðum aldrei prufað J24 bát og höfðum ekki aðgang að neinum slíkum hér á landi. Við settum okkur þá í samband við sænska landsliðið sem einnig er að fara að keppa og þær buðu okkur að koma og æfa með sér og lána okkur bát. Við fórum þá í sameiginlega æfingahelgi í júní með þeim í Skälderviken, Svíþjóð. Við fórum svo aftur um verslunarmannahelgina og æfðum með þeim og kepptum á opnu sænsku móti þar sem áhafnir voru flestar karlaáhafnir. 21 bátur keppti og við náðum 6. sæti sem við erum afar sáttar með enda enn að kynnast því að sigla J24,” segir Sigríður. Seiglurnar eru eina áhöfnin sem keppir í siglingum á Íslandi sem eingöngu er skipuð konum en þær eru búnar að keppa til fjölda ára í blönduðum áhöfnum hver í sínu lagi. “Við stofnuðum þessa áhöfn til að virkja konur til siglinga við Ísland, vekja athygli á heilbrigði hafsins og hvetja öll til ábyrgrar umgengni við hafið og auðlindir þess,“ segir Sigríður.Áhöfnina skipa:Sigríður Ólafsdóttir, skipstjóri, umhverfisfræðingur og kennari í skipstjórnAnna Karen Jörgensdóttir, grafískur hönnuðurÁsta Vilhjálmsdóttir, klæðskeri og kennariGuðrún Björk Friðriksdóttir, viðskiptafræðingur og verkefnastjóriHelena W Óladóttir, umhverfisfræðingurKatrín Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóriHér er hægt að fylgjast með Seiglunum: Facebook, Instagram, heimasíða, heimasíða keppninnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Í gær

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“
Fréttir
Í gær

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Í gær

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“