fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
Fréttir

Telur að þetta geti endað með blóðbaði – „Prigozhin er farinn yfir mörk Pútíns“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 13. apríl 2023 04:15

Yevgeny Prigozhin er eigandi Wagner Group.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yevgeny Prigohzin, eigandi málaliðafyrirtækisins Wagner, er orðinn mjög valdamikill í Rússlandi. En það eru ákveðin mörk á hversu valdamikill hann má verða og nú hefur hann náð þeim mörkum.

Þetta er mat Arne Bård Dalhagu, fyrrum yfirlautinants í norska hernum. Þetta byggir hann á því að Prigozhin ætlar, að sögn rússneska miðilsins Meduza, að taka yfir stjórn rússneska stjórnmálaflokksins „Réttlátt Rússland – Sannleikurinn“ sem hann á í vaxandi samstarfi við. Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War (ISW) hefur einnig skýrt frá þessu.

Dalhaug sagði að þetta væri eitthvað sem Pútín kærir sig ekki um en um leið sé þetta ekki eitthvað sem hann þurfi að hafa áhyggjur af. En það er annað sem Pútín óttast að sögn Dalhaug og það getur orðið eldfimt, ekki síst fyrir Prigozhin.

Stuðningurinn við Prigozhin hefur aukist mjög í Rússlandi vegna þátttöku málaliða hans í Wagner í stríðinu í Úkraínu. Orðrómar hafa verið á kreiki um að hann geti hugsanlega tekið við forsetaembættinu af Pútín.

Dalhaug sagði að Pútín óttist ekki að tapa í kosningum en hann óttist hins vegar að fólk flykkist að baki einhvers, sem getur skorað hann á hólm, sem styrkist svo mikið að viðkomandi geti bolað honum úr forsetaembættinu í valdaráni.

Sérfræðingar hafa margir hverjir nefnt Prigozhin sem þannig mann.

Dalhaug sagði að ef pólitískur metnaður Prigozhin verður of mikill að mati Pútíns þá muni hann lifa hættulegu lífi. Mjög hættulegu.

„Eftir alla þá gagnrýni, sem hann hefur sett fram á hendur rússneska hernum, er hann talinn vandamál fyrir Kreml. Prigozhin hefur nú þegar farið yfir mörk Pútíns og ef hann verður pólitísk ógn er enginn vafi á að hann á morðtilræði yfir höfði sér. Það eru miklar líkur á að Prigozhin muni á dularfullan hátt hverfa eða detta út um glugga á næstu mánuðum. Það er heldur ekki útilokað að sprengjutilræði verði beint gegn honum þegar hann er í Úkraínu. Þá verður auðvelt fyrir Kremlverja að komast upp með það því þeir geta kennt Úkraínu um,“ sagði Dalhaug.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Þetta eru skilyrðin sem Pútín setur fyrir friðarsamningi

Þetta eru skilyrðin sem Pútín setur fyrir friðarsamningi
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Framkvæmdir við græna gímaldið ekki stöðvaðar

Framkvæmdir við græna gímaldið ekki stöðvaðar
Fréttir
Í gær

Óforbetranlegur barnaníðingur samþykkti tillögu saksóknara um að hann verði geldur með skurðaðgerð

Óforbetranlegur barnaníðingur samþykkti tillögu saksóknara um að hann verði geldur með skurðaðgerð
Fréttir
Í gær

Prís alltaf verið með lægsta verðið

Prís alltaf verið með lægsta verðið
Fréttir
Í gær

Lögreglan á Suðurnesjum ætlar ekki að hefja nýja rannsókn á Geirfinnsmálinu – Bókarhöfundar nafngreindu meintan banamann Geirfinns

Lögreglan á Suðurnesjum ætlar ekki að hefja nýja rannsókn á Geirfinnsmálinu – Bókarhöfundar nafngreindu meintan banamann Geirfinns
Fréttir
Í gær

Heildarkostnaður við kaup og breytingu Hótel Sögu 12,7 milljarðar

Heildarkostnaður við kaup og breytingu Hótel Sögu 12,7 milljarðar
Fréttir
Í gær

Faðir flúði til óbyggða með börnin og hefur verið á flótta í fjögur ár – Fjölskyldan grátbiður hann um að gefa sig fram

Faðir flúði til óbyggða með börnin og hefur verið á flótta í fjögur ár – Fjölskyldan grátbiður hann um að gefa sig fram
Fréttir
Í gær

Telur Trump hafa skaðað trúverðugleika sinn og hefur áhyggjur af sambandi hans við Pútín

Telur Trump hafa skaðað trúverðugleika sinn og hefur áhyggjur af sambandi hans við Pútín