Ómar R. Valdimarsson lögmaður birti fyrir stuttri stundu afar harðorðan pistil á Facebook-síðu sinni vegna skrifa fjölmiðilsins Mannlífs um mál hans. Mannlíf birti í morgun frétt þess efnis að Ómar væri með háa skattaskuld á bakinu og að fasteign eiginkonu hans í Garðabæ hefði verið kyrrsett.
„Samkvæmt skjalfestum heimildum Mannlífs hefur fasteignin verið kyrrsett í framhaldi þess að bankareikningur lögmannsins var frystur. Málið var tekið fyrir hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári og kyrrsetning eignarinnar færð til bókar,“ segir í frétt Mannlífs.
Ómar þvertekur fyrir þetta og birtir (sjá tengil neðst í fréttinni) gögn sem sýna skuldleysi hans við skattayfirvöld, sem og að eiginkona hans er þinglýstur eigandi umræddrar fasteignar. Ómar segir í pistli sínum:
„Sannleikurinn er sá, að í fyrra gerði Skatturinn athugasemd við skattskil mín. Í kjölfarið var það sem athugasemdir voru gerðar við leiðrétt og keisaranum gjaldað það sem keisarans var. Hér ber að hafa í huga, að Skatturinn gerir athugasemdir við skattskil hundruða eða þúsunda einstaklinga og lögaðila á hverju ári.“
Ómar fer ófögrum orðum um Reyni Traustason, ritstjóra Mannlífs, og segir að lögmannsstofa hans hafi staðið í stórræðum vegna falsfrétta miðilsins:
„Undanfarið misseri hefur lögmannsstofan mín staðið í stórræðum vegna gengdarlausra falsfrétta Reynis Traustasonar og „frétta-“ síðunnar hans, Mannlíf. Reynir Traustason var ítrekað kærður til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands og annarra aðila fyrir skrif sín, sem hann gekkst við að hafa fengið greitt fyrir að standa að. Þessar kærur skiluðu sér í því að Reynir Traustason var í fjögur aðskilin skipti talinn hafa brotið siðareglur blaðamanna með „alvarlegum“ og „mjög alvarlegum“ hætti. Þessar niðurstöður skiluðu sér í því, að Reynir Traustason hætti að fá greiðslur fyrir níðskrifin sín.“
Ómar segir að Reyni svíði þetta greiðslufall og hafi nú gert sig að skotmarki sínu:
„Nú hefur Reynir Traustason ákveðið að snúa sér að mér. Það hefur skilað sér í því, að Reynir Traustason — eini Íslendingurinn sem Hæstiréttur Íslands hefur dæmt að eigi enga æru til þess að vernda — fjöldaframleiðir níðfréttir um mig. Það nýjasta var í dag, þegar Reynir Traustason skrifaði falsfréttir um skattskil mín og lét að því liggja, að ég ætti yfir höfði mér réttindamissi eða jafnvel fangelsisrefsingu.“