Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að ríkið hafi greitt fyrirtækinu fjögur þúsund krónur fyrir hvert hraðpróf sem fólk búsett hér á landi fór í. Þessum greiðslum var hætt 1. apríl en þá höfðu fyrirtæki, sem önnuðust hraðpróf, fengið greiddan rúmlega einn milljarð frá Sjúkratryggingum Íslands.
Arctic Therapeutics býður upp á hraðpróf í dag og kosta þau 6.980 krónur.
Hákon Hákonsson og Bandaríkjamennirnir David H. Moskowitz og Philip Harper eiga fyrirtækið.