fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fréttir

„Varúð. Eftirfarandi línur eru ekki fyrir þá sem kjósa þægilega blekkingu fremur en óþægilegar staðreyndir“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 8. desember 2022 17:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Þór Jónsson, lögmaður og fyrrum dómari, veltir fyrir sér hvort stjórnvöld þurfi að biðja afsökunar á bólusetningum barna og hvort einhver verði látinn sæta ábyrgð nú þegar breska lyfjaeftirlitið hafi sektað forstjóra Pfizer fyrir að hafa í desember árið 2021 sett fram villandi upplýsingar um gagnsemi sprautulyfja gegn COVID-19 fyrir börn á aldrinum 5-11 ára börn.

Arnar vekur athygli á þessu á Facebook. Þar sem hann skrifar: „Varúð. Eftirfarandi línur eru ekki fyrir þá sem kjósa þægilega blekkingu fremur en óþægilegar staðreyndir.“

„Fyrir tæplega einu ári ritaði ég sem lögmaður erindi, kærur, kvartanir og opin bréf til að aftra sprautuherferð gegn 5-11 ára börnum hérlendis. Viðbrögðin voru þögn, afneitun og aðgerðarleysi.“ 

Arnar segir að fjölmiðlar hafi gert grýlu úr umbjóðenda Arnars og jafnvel hafi persóna Arnars sjálfs verið dregin inn í málið.

Arnar bendir nú á þrennt varðandi það mál.

„1. Breska lyfjaeftirlitið hefur nú sektað forstjóra Pfizer fyrir að hafa í desember 2021 sett fram villandi upplýsingar um gagnsemi sprautulyfja gegn C19 fyrir 5-11 ára börn. 
2. Samkvæmt opinberri tölfræði CDC, sem byggð er á öllum C19 smitum og andlátum í USA frá janúar 2020 til september 2021, var dánartíðni (IFR) 0-17 ára barna 0,01%. 
3. Í hringborðsumræðum í Washington í gær kom m.a. fram að í yngstu aldurshópnum væri hættan af bóluefnunum meiri en af veirunni. (Sjá Dr. Harvey Risch, prófessor í faraldursfræði við Yale)“ 

Arnar segir að í ljósi þessa þurfi að skoða framgöngu „stofnanaveldisins hérlendis“ sem hafi að lögum borið að standa vörð um heilsu og hagsmuni almennings.

„Hvað gerist þegar staðreyndum (sem bent var á 2021) verður ekki lengur afneitað? Mun það framkalla afsökunarbeiðni/endurskoðun/afsagnir/ábyrgð/skaðabætur? Munu embættismenn komast upp með þögn/afneitun eða villandi staðhæfingar? Til hvers er verið að halda uppi eftirlitsstofnunum hér ef þær sinna ekki brýnasta eftirliti og bregðast þegar mest liggur við? Ég tek fram að ég spyr þessara spurningar sem lögmaður. Hvernig geta lögmenn skilað sínu hlutverki á grundvelli laga ef stofnanir ríkisins komast upp með að vanvirða lagalegar skyldur sínar?“ 

Ummæli forstjóra Pfizer, Albert Bourla, sem Arnar vísar til eru ummæli sem féllu í viðtali við BBC Breakfast fyrir ári síðan, þar sem Albert sagði að veiran lifði góðu lífi í skólum og það væri enginn efi í hans huga um að bólusetningar væru gagnlegar börnum. Á þeim tíma hafi ekki legið fyrir hvort að samþykkja bæri bóluefni fyrir börn á aldrinum 5-11.  Slíkt samþykki hafi ekki komið fram fyrr en í febrúar á þessu ári. Í mars hafi svo verið birt gögn sem bentu til þess að gagnsemi bóluefna fyrir börn væri strax komið niður í um 12 prósent aðeins fáeinum vikum eftir bólusetningu.

Varðandi hringborðsumræðuna í gær þá fór hún fram undir stjórn öldungadeildarþingmannsins Ron Johnson og var til hennar boðið sérfræðingum og vísindamönnum sem hafa gagnrýnt bóluefnið við COVID-19. Johnson bauð líka embættismönnum á borð við ráðgjafa Bandaríkjaforseta í COVID-málefnum sem og forstjóra sóttvarnarstofnunar Bandaríkjanna-CDC og forstjóra Pfizer Albert Bourla í umræðuna en þeir þáðu ekki boðið. Ron Johnson er repúblikani og harður gagnrýnandi sóttvarnaraðgerða í Bandaríkjunum sem og bóluefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Úkraínsk sérsveit hefur eyðilagt rússnesk hergögn að verðmæti 660 milljarða

Úkraínsk sérsveit hefur eyðilagt rússnesk hergögn að verðmæti 660 milljarða
Fréttir
Í gær

Kostnaður við starfshópa Guðlaugs Þórs hljóp á hundruð milljónum króna – Flokksgæðingar á lista

Kostnaður við starfshópa Guðlaugs Þórs hljóp á hundruð milljónum króna – Flokksgæðingar á lista
Fréttir
Í gær

Dagmar brá við óþægilegt símtal frá lögreglunni – Biggi Sævars lét verða af hótuninni – „Týpísk taktík hjá svona mönnum“

Dagmar brá við óþægilegt símtal frá lögreglunni – Biggi Sævars lét verða af hótuninni – „Týpísk taktík hjá svona mönnum“
Fréttir
Í gær

Össur telur að málþófið muni reynast Sjálfstæðismönnum dýrkeypt

Össur telur að málþófið muni reynast Sjálfstæðismönnum dýrkeypt
Fréttir
Í gær

Hvað hefði brúðkaup Bezos kostað á Íslandi? – „Var mjög rausnarlegur og ég komst upp í 2,7 milljarða“ 

Hvað hefði brúðkaup Bezos kostað á Íslandi? – „Var mjög rausnarlegur og ég komst upp í 2,7 milljarða“ 
Fréttir
Í gær

Guðjón skaut á strandveiðar í skugga banaslyss – „Ertu hálfviti?“

Guðjón skaut á strandveiðar í skugga banaslyss – „Ertu hálfviti?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjónvarpsstöðin SÝN opnar upp á gátt fyrir alla landsmenn frá og með 1. ágúst

Sjónvarpsstöðin SÝN opnar upp á gátt fyrir alla landsmenn frá og með 1. ágúst
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grindavíkurbær auglýsir íbúðir í sinni eigu til leigu

Grindavíkurbær auglýsir íbúðir í sinni eigu til leigu