fbpx
Laugardagur 21.júní 2025
Fréttir

Viðbrögð yfirmannsins þegar Katrín Lóa kvartaði undan áreitni Helga í Góu – „Hvað er til mikill ís?“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 15. desember 2022 19:04

Helgi í Góu. Aðsend mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðtal Eigin kvenna og grein Stundarinnar um áreitni Helga Vilhjálmssonar, Helga í Góu, í garð ungrar konu sem starfaði hjá honum, hefur vakið gífurlega athygli.

DV greindi frá fyrr í dag:

Katrín Lóa segir að margra mánaða martröð hafi byrjað eftir að hún þáði lán frá Helga í Góu – „Svo reif hann bolinn minn upp“

Í áreitið hófst í kjölfar þess að Helgi lánaði Katrínu Lóu Kristrúnardóttur fimm milljónir króna til innborgunar í húsnæði. Gróft kynferðislegt áreiti Helga við konuna hófst árið 2018 og stóð langt fram á ár 2019. „Ef ég hefði bara vitað þetta þegar ég samþykkti, ég hefði frekar búið á götunni sko. Heldur en að ganga í gegnum þetta,“ segir hún í viðtali við Eddu Falak.

Katrín kvartaði undan áreitni Helga í Góu við sinn nánasta yfirmann, Helga Helgason. Stundin birtir skjáskot af þeim samskiptum. Þar kemur m.a. fram að viðbrögð yfirmannsins voru á þá leið að spyrja hvað væri til mikill ís, en Katrín starfaði í ísbúð Helga í Góu, Skalla á Selfossi.

 

Katrín upplifði sig í mjög snúinni og erfiðri stöðu, þar sem hún var nýbúin að liggja lán frá Helga en hann var að beita hana mjög óþægilegri og ógnandi áreitni. Hún upplifði sig fasta.  „Ég var eiginlega bara föst. Og ég held að hann hafi alveg vitað að ég var föst,“ segir hún.

Hér að neðan má sjá frekari samskipti Katrínar við Helga Helgason, yfirmann hennar:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?
Fréttir
Í gær

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd