fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Verjandi Ísidórs hafnar því með öllu að hann hafi verið að undirbúa hryðjuverk – „Málið mjög þungbært fyrir hann og hans aðstandendur“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 21. október 2022 16:15

Hluti vopnanna sem gerð voru upptæk við rannsókn málsins. Mynd: Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verjandi Ísidórs Nathanssonar, sem ásamt Sindra Snæ Birgissyni, situr í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á stórfelldu vopnalagabroti og áformum um hryðjuverk, segir að málið sé skjólstæðingi hans mjög erfitt:

„Þetta yfirbragð sem málið hefur tekið á sig hefur komið mjög illa við hann og þeim sem honum tengjast, dvölin í gæsluvarðhaldi er alltaf erfið og málið mjög þungbært fyrir hann og hans aðstandendur,“ segir Einar Oddur Sigurðsson lögmaður, sem gætir hagsmuna Ísidórs.

Einar tekur undir með verjanda Sindra Snæs, Sveini Andra Sveinssyni, að lögreglan hafi engan veginn sýnt fram á að mennirnir tveir hafi í raun verið að undirbúa hryðjuverk þrátt fyrir afar glannalegt tal þeirra á spjallforriti um slík áform.

Sjá einnig: Verjandi Sindra Snæs segir engin hryðjuverk hafa verið í undirbúningi – „Þetta mál er hvorki fugl né fiskur“

„Þetta snýst um tiltekin samskipti og hvaða túlkun eigi að leggja í þau, ég er sammála þeim röddum sem sagt hafa lögregluna fara offari í þessu máli og þá sérstaklega í tengslum við þessa blaðamannafundi sem haldnir voru í upphafi.“

Einar segir að efniatriði í rannsókninni sem lekið hafi til fjölmiðla hafi verið skjólstæðingi hans mjög þungbær en nefnd hafa verið ýmis skelfileg meint áform piltanna um glæpaverk sem verjendur þeirra, Sveinn og Einar, hafna með öllu að hafi verið í undirbúningi:

„Ef þessi heimfærsla á að ganga upp þá þarf að sýna fram á einhvers konar undirbúningsathafnir eða að ásetningur hafi verið sýndur í verki.“ – Einar segir af og frá að Ísidór hafi í raun verið að undirbúa hryðjuverk: „Ég hafna því algjörlega.“

Segir hann að þessi umfjöllun hafi verið gífurlega íþyngjandi fyrir Ísidór.

„Það eru ýmsar ávirðingar uppi sem ekki er hægt að segja að eigi við nein rök að styðjast en vopnalagabrotin eru kannski frekar borðliggjandi,“ segir Einar en þeir Sindri Snær og Ísidór eru sakaðir um að hafa verið að búa til skotvopn með þrívíddarprentara.

Einar er ekki áfjáður í að tjá sig um málið við fjölmiðla en telur nauðsynlegt að árétta að skjólstæðingur hans hafni með öllum ásökunum um að hann hafi verið að undirbúa hryðjuverk:

„Almennt séð er ekki til bóta að reka mál í fjölmiðlum en fyrst umfjöllunin fór af stað og málið var lagt upp með þessum hætti þá eru verjendur nauðbeygðir til að bera hönd fyrir höfuð skjólstæðinga sinna.“

Þeir Sindri Snær og Ísidór hafa verið í gæsluvarðhaldi síðan 21. september og rennur framlengdur gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þeim út þann 10. nóvember.

Ekki er hægt að halda sakborningum lengur í gæsluvarðhaldi en þrjá mánuði án þess að leggja fram ákæru gegn þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni