fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Stórfurðulegt innbrot í Árbæ í nótt sem lögregla hristi hausinn yfir – „Þetta er bara eitt það skrítnasta sem ég hef lent í“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 13. september 2022 16:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiganda sjoppunnar Prinsins í Hraunbæ mætti furðuleg sjón í morgun þegar hann mætti til vinnu. Þar hafði óprúttinn aðili brotist inn sem er svo sem ekki óheyrt þar á bæjum en um er að ræða fimmta innbrotið á þessu ári. Hins vegar var það aðferðin sem innbrotsaðilinn beitti sem vakti furðuna.

„Þetta er bara eitt það skrítnasta sem ég hef lent í sko,“ segir Guðjón Jónasson eigandi Prinsins í samtali við blaðamann. „Þetta er í fimmta skiptið sem það er brotist inn á einu ári og þeir hafa farið ýmsar leiðir en þetta er það skrítnasta sem ég hef séð og þegar lögreglan kom – þeir hristu bara hausinn, þeir höfðu aldrei séð svona.“

Eins og atriði úr bíómynd

Innbrotsþjófurinn virðist hafa fengið innblástur úr kvikmyndunum Mission Impossible með Tom Cruise þar sem hann hafði ákveðið að brjótast inn ofan frá.

„Innbrotsþjófurinn greinilega fer upp á þak. Sagar bút úr þakinu, tekur einangrunina frá og allt og lætur sig síga niður með svona „sig búnað“ ég veit ekki hvað þetta heitir, en þetta er eins og klifrarar setja utan um lærin á sér, og svo lætur hann sig síga niður.“

Innbrotsþjófurinn reyndi því næst að spenna upp einn af þremur byssuskápunum sem eru í sjoppunni og geyma sígarettur. Eitthvað gekk honum þó verr að komast inn í skápana heldur en honum hafði gengið að komast inn í sjoppuna.

„Hann reynir að spenna upp annan þeirra, nær því ekki, þá hoppar hann yfir afgreiðsluborðið, hleypur að hurðinni og reynir að opna hana.  En hún er læst með lykli svo þú getur ekkert bara opnað hana. Svo hann brýtur sér leið í gegn.“

Galnasta atriði sem við höfum lent í

Á hurðinni var afar lítið gat sem þjófurinn hefur brotið á glerið, og einhvern veginn tókst þjófnum að koma sér í gegn. Guðjón segir að það sé út af fyrir sig furðulegur hluti af þessu líka.

„Þetta er pinkulítið gat og hann einhvern veginn treður sér í gegn. Síðan er eins og hann festist aðeins í miðjunni og þá fara bara lappirnar upp í loft og hann einhvern veginn lekur svo út um hurðina. Þetta er galnasta atriði sem við höfum lent í“

Guðjón segir að þetta hafi verið frumlegasta innbrots-aðferðin til þessa. Eins og áður segir er þetta í fimmta sinn sem brotist er inn í sjoppuna á einu ári. Tveir innbrotsþrjótanna fóru inn baka til og þurfti Guðjón á endanum að bora þá hurð fasta. Síðan hafi einn spennt hurðina að framan upp og sá fjórði hafi farið í gegnum gat á glerinu, líkt og þessi í nótt sem notaði þó gat í hurðinni til að komast út.

Tveir þjófanna hafi reynt að komast í afgreiðslukassann óafvitandi að engir peningar eru geymdir í sjoppunni yfir nótt. Því hafi flestir þrjótarnir komið sér undan með skottið milli lappanna og haft lítið upp úr brotastarfsemi sinni.

„Ég held bara í fyrsta innbrotinu voru teknir einhverjir fjórir sígarettupakkar annars hefur ekkert verið tekið.“

Guðjón segist eiga erfitt að ímynda sér hvers konar þjófur notist við slíkar aðferðir sem beitt var í nótt. Þetta hafi verið einstaklega fagmannlega gert, þó að árangurinn hafi verið enginn.

video
play-sharp-fill
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Málinu sem klauf kirkju aðventista vísað frá – Lambafell og Litla-Sandfell flutt til sementsgerðar í Þýskalandi

Málinu sem klauf kirkju aðventista vísað frá – Lambafell og Litla-Sandfell flutt til sementsgerðar í Þýskalandi
Fréttir
Í gær

Japanar óttast fall Úkraínu og krísu í Asíu ef stuðnings Bandaríkjanna nýtur ekki við

Japanar óttast fall Úkraínu og krísu í Asíu ef stuðnings Bandaríkjanna nýtur ekki við
Fréttir
Í gær

Ragnheiður ánægð að hafa hætt viðskiptum við fyrirtækið

Ragnheiður ánægð að hafa hætt viðskiptum við fyrirtækið
Fréttir
Í gær

Áfengisneysla á uppleið á Íslandi en niðurleið í Evrópu – Íslendingar fara oft á fyllerí

Áfengisneysla á uppleið á Íslandi en niðurleið í Evrópu – Íslendingar fara oft á fyllerí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann á flótta undan réttvísinni – Ákærður fyrir vörslu og dreifingu barnaníðsefnis en mætir ekki fyrir dóm

Jóhann á flótta undan réttvísinni – Ákærður fyrir vörslu og dreifingu barnaníðsefnis en mætir ekki fyrir dóm
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heiða neitaði að spila lag með Hallbirni Hjartarsyni – „Næsti hlustandi sem náði inn öskraði á mig“

Heiða neitaði að spila lag með Hallbirni Hjartarsyni – „Næsti hlustandi sem náði inn öskraði á mig“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Með varanlegan taugaskaða eftir að hann var skorinn upp á Landspítala við ófullnægjandi lýsingu

Með varanlegan taugaskaða eftir að hann var skorinn upp á Landspítala við ófullnægjandi lýsingu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Starfsfólk hetjur sem eigi hrós skilið – „Ég á varla til orð til að lýsa aðdáun minni“

Starfsfólk hetjur sem eigi hrós skilið – „Ég á varla til orð til að lýsa aðdáun minni“
Hide picture