Garry Kasparov, fyrrum heimsmeistari í skák og af mörgum talinn sterkasti skákmaður sögunnar, hefur nú tjáð sig um skákhneykslið í St. Louis þar sem Norðmaðurinn Magnus Carlsen, ríkjandi heimsmeistari, hætti skyndilega í einu sterkasta skákmóti heims. Óhætt er að segja að skákáhugafólk leggi við hlustir þegar Kasparov tjáir sig og hann telur að Carlsen skuldi útskýringar á hegðun sinni.
„Ég mun ekki tjá mig um hvernig ýjað var að einhverju miður geðslegu en ég verð að tjá mig um það sem við vitum: Heimsmeistarinn Magnus Carlsen hætti í einu stærsta skákmóti heims í St. Louis, eitthvað sem á sér enga hliðstæðu undanfarin 50 ár og hann skuldar útskýringu.“
I will not delve into the ugly insinuations of the matter now, but must remark on what we do know: World chess champion Magnus Carlsen withdrew from the world’s premier tournament in St. Louis, an act with no precedent in the past 50 years, and his explanation is required.
— Garry Kasparov (@Kasparov63) September 8, 2022
Sagði Kasparov og bætti enn frekar við:
„Það að Carlsen skyldi hætta í mótinu var skellur fyrir skákáhugafólk, kollega hans á mótinu, skipuleggjendur og fyrir skáklistina sjálfa á meðan orðrómar og neikvæð umræða dreifist út. Heimsmeistaratitilinum fylgir ábyrgð og opinber yfirlýsing er það minnsta sem hægt er að gera.