fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Eiður opnar sig um andleg veikindi sín og segir frá örlagaríkri setningu – „Ég fattaði það ekki fyrr en setningin kom út úr mér“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 5. júlí 2022 16:45

Eiður Rafn - Skjáskot/Acro.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiður Rafn Gunnarsson lögfræðingur hefur í smá tíma hugsað um að birta sögu sína um andleg veikindi af þeirri ástæðu að sögur frá öðrum hjálpuðu honum gríðarlega. Eiður ákvað að birta söguna sína á Vísi í dag eftir að hann sá hvaða lyf árásarmaðurinn í verslunarmiðstöðinni í Kaupmannahöfn hafði verið að taka.

„Fréttin sem ég las fyrst um Kaupmannahöfn var auðvitað sláandi vegna þess að árásin hafði gerst í Kaupmannahöfn, sem er líklega líkasta höfuðborg okkar eigin í heiminum, en fréttin var einnig sláandi fyrir mig vegna þess að ég las að árásarmaðurinn hafði verið að taka lyf sem hét „Quetiapine“ og sagði það ekki virka fyrir sig.“

Ástæðan fyrir því að lyfið Quetiapine vakti athygli Eiðs er sú að hann hafði fengið lyfið vegna svefnleysis fyrir um 8 árum síðan. „Lyfið virkaði ekki fyrir mig og ég man að mér leið ömurlega af því. Einnig kannski viðeigandi að taka fram hér að ég hafði prófað allskyns lyf áður en læknirinn ákvað að prófa þetta og ég var orðinn töluvert veikur vegna svefnleysisins. Eftir að það hafði ekki virkað var orðið svona þokkalega augljóst hvað var að mér, ég var með kvíða,“ segir Eiður í pistlinum.

Eftir að ljóst var að Eiður var með kvíða fékk hann ávísað róandi lyf til að taka um kvöldið. „Ég svaf almennilega í fyrsta skipti í fleiri vikur,“ segir hann í pistlinum. „Ég sætti mig samt ekkert við að ég væri með kvíða, enda var það bara fólk með andleg veikindi sem er með kvíða, ég ákvað að flokka þetta sem stress og leitaði mér ekkert frekari hjálpar en að kalla eftir slíkum töflum þegar ég lenti í svefnleysi.“

„Ég hef sennilega aldrei verið jafn lítill í mér og eftir samtalið“

Þetta ferli, að kalla eftir lyfinu þegar svefnleysið gerði vart við sig, virkaði ágætlega fyrir Eið í um fjögur ár eða þangað til hann fékk fyrsta kvíðakastið sitt í lok vinnudags árið 2018. „Ég myndi reyna að lýsa kvíðakasti hér fyrir þá sem ekki hafa fengið svoleiðis en ég held að það sé ekki hægt að gera það almennilega með orðum nema að líkja því bara við allt sem maður hefur heyrt um hjartaáfall. Allavega, ég kem mér á bráðamóttökuna, hleyp inn og segi fólkinu í afgreiðslunni að ég sé að fá hjartaáfall,“ segir hann.

Nokkrum tímum eftir að hann mætti á bráðamóttökuna rankaði Eiður við sé á hjartadeild Landspítalans með æðalegg. Skömmu síðar kom til hans læknir og sagði honum að það væri ekkert sem benti til þess að hann hafi fengið hjartaáfall eða neitt í líkingu við það.

„Læknirinn settist hjá mér og spurði út í hvað hefði gerst. Eftir samtalið fannst mér augljóst að um kvíðakast hefði verið að ræða enda frekar fáránlegt að tvítugur drengur í fínu formi væri að fá hjartaáfall. Ég hef sennilega aldrei verið jafn lítill í mér og eftir samtalið, ég hafði sóað tíma hjúkrunarfræðinga og lækna vegna kvíðakasts.“

Meðferðin virkaði öfugt

Nokkrum dögum eftir þetta fyrsta kvíðakast leitaði Eiður sér hjálpar hjá Kvíðameðferðarstöðinni þar sem hann var kynntur fyrir hugrænni atferlismeðferð, eða HAM eins og hún er einnig kölluð. „Hún virkaði svona ágætlega en ég var ennþá tregur að sætta mig við að ég væri veikur,“ segir Eiður.

Líf hans var frekar eðlilegt eftir þetta en hann fékk samt misalvarleg köst með um 2-4 mánaða millibili. Þegar hann var á fyrsta ári í mastersnámi, haustið 2020, fór þó allt á hliðina.

„Ég fékk kvíðakast og ákvað í fyrsta skipti ekki að taka róandi lyf. Ég ætlaði að nota HAM meðferðina og leyfa kastinu að taka mig, hvetja kastið áfram. Þessi ákvörðun endaði með því að ég fékk kvíðakast á hverjum degi í 6 vikur. Kvíðaköstin voru líka öðruvísi en þau höfðu verið áður, þau bara hættu ekki nema í smá stund og svo fór annað af stað.“

Þessi hrina af köstum byrjaði þegar það voru um 8 vikur í lokaprófin hjá Eiði. „Ég fór því strax í að koma mér til sálfræðings. Sálfræðingurinn var frábær og hafði alveg séð aðra lenda í svipuðu rugli, HAM virkar bara ekki eins fyrir alla. Sumir lenda nefnilega í því að heilinn fattar að þetta sé þú að fara í vörn þegar þú leyfir kastinu að koma, það verður því í raun allt öfugt við bardagann,“ segir hann í pistlinum.

Var kominn „aftur til helvítis“ um sumarið

Eiður segir að þarna hafi ástandið verið á þann veg að hann þurfti ekki bara á sálfræðingi að halda heldur einnig geðlækni. „Sem betur fer þekkti fjölskyldumeðlimur til geðlæknis sem gat tekið við mér eftir sinn venjulega dag en biðtími var að mig minnir 3 mánuðir á þeim tíma,“ segir Eiður og bendir á að það verði að laga þennan langa biðtíma.

„Ég lýsti því sem var að hrjá mig og fékk bókstaflega kvíðakast inni hjá honum sem var það alvarlegt að hann ætlaði ekki að leyfa mér að keyra heim fyrr en ég væri kominn með lit í andlitið aftur. Hann ávísaði mér róandi lyf sem ég átti að taka þrisvar á dag. Það ferli kom mér úr hrinunni og ég gat tekið lokaprófin með misgóðum árangri.“

Eftir prófin fór Eiður aftur til geðlæknisins og sagði þar setningu sem átti eftir að reynast örlakarík. „Ég sagði við hann: „ef ég gæti kastað pening áður en ég fer að sofa í kvöld upp á hvort ég myndi aldrei fá kvíðakast aftur eða ég myndi aldrei vakna aftur, þá myndi ég kasta honum.“ Ég fattaði það ekki fyrr en setningin kom út úr mér (hún hljómaði saklausari í hausnum) að þetta gæti fyrir lækninn bent til þess að ég væri að hugsa um sjálfsvíg.“

Eiður er nokkuð viss um að þessi setning hafi verið það sem dró lækninn yfir þá línu að ég þyrfti þunglyndislyf.

Eftir þetta tók við erfitt ferli en Eiður segir að það sé ekkert grín að byrja á lyfjum sem þessum. Eftir um hálft ár var honum farið að líða aftur frekar vel og ákvað að hætta á lyfjunum þrátt fyrir að læknirinn hafði mælt með því að taka þau í að minnsta kosti ár.

„Hann hafði að sjálfsögðu rétt fyrir sér, ég var kominn aftur til helvítis um sumarið,“ segir Eiður. Það var þó mun einfaldara fyrir hann að komast aftur í stand því hann vissi hvað hann þurfti, hann þurfti þessi lyf.

„Þetta mun ekki skilgreina þig sem manneskju“

Þegar Eiður byrjaði að taka lyfin aftur um síðasta sumar þá fékk hann mjög furðulega og sjaldgæfa aukaverkun vegna þeirra, mjög hátt suð í annað eyrað. Hann þurfti því að skipta um lyf. „Ég skipti um lyf og fann réttan skammt af því. Ég hef tekið það daglega síðan samhliða morgunskammtinum af vítamínum og það var ekki fyrr en núna í byrjun sumars sem mér byrjaði að líða smá eins og mér hafði liðið áður en þetta byrjaði allt saman,“ segir hann.

„Ég vakna ekki með örann hjartslátt, ég hugsa ekki um að ég muni fá kvíðakast þegar ég geng inn á fundi og ég hef aðrar tilfinningar en lítinn til mikinn kvíða. Ég man ekki einu sinni hvenær ég fékk síðast almennilegt kvíðakast (þó ég hafi átt góða og slæma daga eins og flestir). Það eru þó fínar líkur á að ég muni aftur fá kvíðakast á næstu misserum. Ég veit líka alveg að þessi barátta er ekkert búin þó maður eigi nokkra góða mánuði og ég er ekki viss um að hún verði nokkurn tímann algjörlega búin, en það er bara allt í góðu.“

Undir lokin segir Eiður að það hafi verið margt í ferlinu hans sem honum finnst viðeigandi að bæta við. „Eins og hversu algengt það var fyrir geðlækninn minn að vera lengur í vinnunni til að geta komið fólki að og hversu góðhjartaðir aðrir heilbrigðisstarfsmenn voru líka þegar manni vantaði hjálp, ég mun aldrei gleyma þessu fólki,“ segir hann.

„Það sem ég vona að aðrir í minni stöðu eða sambærilegri sem lesa þetta taki frá þessari sögu er að það er alltaf önnur lausn þó sú fyrsta eða önnur eða þriðja virki ekki. Það eru til margar aðferðir eins og HAM, það eru til mörg mismunandi lyf við sömu veikindunum, Það eru til margar mismunandi blöndur af sitthvoru og það eru margir þarna úti sem eru tilbúnir að hjálpa.“

Að lokum segir Eiður að hann viti um marga sem hann lítur upp til sem gengu í gegnum svipaða hluti og hann. „Fólk á toppnum á sínu sviði. Þetta mun ekki skilgreina þig sem manneskju, nýttu þér hjálp.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Erum við sátt við að algóritminn sjái um uppeldið“

„Erum við sátt við að algóritminn sjái um uppeldið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer