fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Stefnir Bjarna Ben og krefst einnar milljónar króna fyrir að hafa verið neydd í sóttvarnahús

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 5. maí 2022 14:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona að nafni Kinga Stanelé, sem býr í Reykjanesbæ, hefur stefnt ríkinu og krafist einnar milljónar króna í miskabætur fyrir að hafa með ólöglegum hætti verið neydd til að dveljast í sóttvarnahúsi við komu til Íslands frá Póllandi.

Í fyrirsvari fyrir ríkið í málinu er Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnhagsráðherra, en aðalmeðferð verður í málinu við Héraðsdóm Reykjavíkur á föstudag.

Kinga kom til landsins frá Póllandi 2. apríl 2021. Við komuna til landsins var hann gert að sæta sóttkví á Fosshóteli í Þórunnartúni 1 á grundvelli þágildandi sóttvarnareglugerðar. Kinga mótmælti þessu og sagðist tilbúin að vera sóttkví heima hjá sér. Ekki var tekið tillit til mótmæla hennar og hún flutt með rútu frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur, að Þórunnartúni.

Tveimur dögum síðar krafðist lögmaður Kinga þess að ákvörðunin um að hún ætti að dveljast í sóttvarnahúsi yrði borin undir héraðsdóm. Fyrir héraðdsómi voru felldar úr gildi stjórnvaldsákvarðanir þess efnis að farþegar til landsins yrðu að dvelast á sóttvarnahóteli því ekki þótti vera lagastoð fyrir þessari grein í reglugerðinni.

Krafa Kinga um miskabætur er byggð á ákvæði stjórnarskrárinnar um að enginn verði sviptur frelsi nema með lögum og að hafi maður verið sviptur frelsi að ósekju skuli hann eiga rétt til skaðabóta. Í stefnu málsins, sem DV hefur undir höndum, segir að ljóst sé að brotið hafi verið gegn stjórnskrárvörðum réttindum konunnar án viðhlítandi lagastoðar.

Kinga byggir kröfu sína um miskabætur einnig á því að hún hafi verið reiðubúin að dveljast í heimasóttkví og hafi gert ráðstafanir til þess. En þess í stað hafi hún verið vistuð á litlu hótelherbergi þar sem möguleikar hennar til að komast undir bert loft voru verulega takmarkaðir. Einnig hafi henni verið meinað að fara í göngutúr sér til heilsubótar þrátt fyrir að það hafi staðið öðrum til boða. Henni var ekki ljóst hvenær hún gæti matast eða hvenær henni yrði frjálst að yfirgefa sóttvarnahúsið. Telur hún að í þessu hafi falist ómannúðleg og vanvirðandi meðferð.

Í stefnunni er vísað til dómafordæma þar sem fólki hefur verið dæmdar skaðabætur fyrir ólöglegt varðhald. Kinga var vistuð í tvo sólarhringa á sóttvarnahótelinu og er farið fram á 500 þúsund krónur fyrir hvern sólarhring, samtals eina milljón króna.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“