fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Úkraínumenn hvetja rússneska hermenn til að gefast upp – „Milljón“ er leyniorðið

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 4. apríl 2022 07:00

Rússneskir hermenn í Úkraínu. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Strax í upphafi innrásar Rússa í Úkraínu sagði Volodymyr Zelenskyy, Úkraínuforseti, innrásina ónauðsynlega og hvatti rússneska hermenn til að leggja niður vopn og gefa sig úkraínska hernum á vald. Síðan þá hafa úkraínsk stjórnvöld lofað rússneskum hermönnum greiðslum og möguleika á úkraínsku ríkisfangi ef þeir gefast friðsamlega upp.

Til að koma þessum upplýsingum til rússneskra hermanna senda Úkraínumenn þeim skilaboð þar sem eitt lykilorð er mjög mikilvægt fyrir friðsamlega uppgjöf. „Milljón!“ eiga rússneskir hermenn að hrópa ef þeir vilja gefast upp en orðið er tilvísun í það loforð úkraínska varnarmálaráðuneytisins að greiða þeim rússnesku hermönnum, sem gefast upp, 5 milljónir rúblna en það svara til tæplega átta milljóna íslenskra króna.

Úkraínski varnarmálaráðherrann birti færslu á samfélagsmiðlum nokkrum dögum eftir að innrásin hófst þar sem hann sagði að allir Rússar sem „myndu leggja niður vopn“ fengju greiðslu og sakaruppgjöf ásamt þeim möguleika að geta sótt um úkraínskt ríkisfang að stríðinu loknu. „Þið eigið möguleika á að hefja nýtt líf. Takið ákvörðun. Komið til okkar án vopna, með hvítan fána. Segið lykilorðið „milljón“ til að lifa af,“ skrifaði hann.

Þetta virðist hafa borið árangur ef marka má frásögn úkraínskra yfirvalda sem skýrðu frá því 22. mars að rússneskur hermaður hafi komið akandi í skriðdreka og gefist upp til að sleppa úr stríðinu. Hermaðurinn er sagður hafa verið þreyttur á stríðinu og hafi komið einn akandi á skriðdrekanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“