fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Rottuleikur, njósnaradraumar og ólýsanlegur hefndarþorsti – Svona varð Pútín stærsti óvinur heimsfriðarins

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 4. apríl 2022 05:56

Er þetta að springa í andlitið á Pútín? Mynd: EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í upphafi sjöunda áratugarins hlupu ungir drengir um í hrörlegu húsi í Leníngrad í Sovétríkjunum þáverandi. Þeir voru með prik og leituðu að rottum í húsinu. Einn þeirra sá skyndilega eina stóra og hljóp á eftir henni. Hann elti hana þar til honum tókst að króa hana af út í horni. Þá var kominn tími til að nota prikið en þá breyttist staðan skyndilega.

Rottan ákvað að leggja til atlögu við drenginn sem varð hræddur og lagði á flótta og náði síðan að skella hurð á rottuna. Hann meiddist ekki en hann gleymdi aldrei þessum atburði, þessum degi þar sem hann lærði ákveðna lexíu. Hann sagði frá þessu árið 2000 og sagði þá að það sem hann hefði lært af þessu væri að vita hvað gerist þegar maður er „króaður af úti í horni“.

Þessi litli drengur var Vladímír Pútín sem er nú forseti Rússlands. Segja má að nú fái heimsbyggðin að kenna á því hvað gerist þegar hann telur sig hafa verið króaðan af úti í horni. Hann háir nú stríð í Úkraínu, stríð sem byggist á þeirri skoðun hans að áratugum saman hafi Rússland verið króað af úti í horni.

En þegar atvikið með rottuna átti sér stað var ekkert sem benti til að Pútín yrði sá maður sem hann er í dag. Einn af kennurum hans í grunnskóla lýsir honum sem „ódælum“ litlum dreng sem var góður að slást.

Pútín á yngri árum.

Hann er einnig sagður hafa verið eins og flestir sovéskir drengir á þessum aldri, hafi átt sér tvær uppáhalds hetjusögur. Fyrst og fremst þeirri sem segir frá hetjudáðum barna í síðari heimsstyrjöldinni þegar þau börðust gegn nasistum. Hin er sagan af Stierlitz. Max Otto von Stierlitz var svar Sovétríkjanna við James Bond. 1973 var tólf þátta sjónvarpssería um Stierlitz sýnd í Sovétríkjunum en í þeim var fjallað um líf hans og störf á tímum Þýskalands nasista.

Fékk starf hjá KGB

1975 fékk Pútín, sem þá var 23 ára, starf hjá sovésku leyniþjónustunni KGB. Þar starfaði hann innanlands til 1985 en þá var hann sendur til Dresden í Þýskalandi. Þar óx hatur hans á Vesturlöndum enn frekar.

Pútín á KGB-árunum.

 

 

 

 

 

 

 

 

Eiginkona hans Ljudmila, fór með honum til Austur-Þýskalands. Hún hafði þá fengið forsmekkinn af óhefðbundnum aðferðum Pútíns til að takast á við lífið ef marka má sögusagnir. Sagt er að til að láta reyna á ást hennar hafi Pútín árið áður fengið nokkra vini sína og samstarfsmenn til að reyna að táldraga Ljudmila. Hún svaraði þeim hins vegar skýrt: „Ég er með Vladímír, takk samt.“ Þar með stóðst hún prófið. Síðar sagði hún að lífið í Dresden hafi verið „leiðinlegt og grátt“. Dvöl þeirra þar lauk skyndilega þegar Berlínarmúrinn hrundi og héldu þau þá heim. Í tengslum við hrun Berlínarmúrsins sá Pútín draum sinn hrynja. Þetta var draumurinn um sterk Sovétríkin, stórveldi á alþjóðavettvangi. En þess í stað leystust þau upp og til urðu hin ýmsu ríki sem áður höfðu verið hluti af Sovétríkjunum, þar á meðal Úkraína.

Stjórnmál og morð

Hatur í garð Vesturlanda kraumaði undir yfirborðinu hjá Pútín, hann kenndi þeim um hvernig farið hafði fyrir Sovétríkjunum. Þessi reiði hans hvatti hann til að hella sér út í stjórnmál. Óhætt er að segja að á því sviði hafi frami hans verið skjótur.

Hann hófst í St Pétursborg og 1996 flutti hann til Moskvu. 1999 varð hann forsætisráðherra og ári síðar var hann orðinn forseti.

Ekki leið á löngu áður en heimurinn fékk að sjá forsmekkinn af leiðtogastíl hans þar sem hann tók af mikilli hörku og miskunnarleysi á andstæðingum sínum. Í því sambandi má nefna blaðakonuna Anna Polikovskaya sem var myrt í lyftu í fjölbýlishúsinu sem hún bjó í árið 2006. Hún hafði árum saman verið gagnrýnin í garð stjórnar Pútíns og hernaðar Rússa í Téténíu. Síðar þetta sama ár var röðin komin að Alexander Litvinenko sem var í útlegð í Lundúnum. Hann hafði afhjúpað fjölda leyndarmála rússnesku leyniþjónustunnar FSB og hann og Pútín voru persónulegir óvinir. Eitrað var fyrir honum með póloni 210 sem er geislavirkt efni.

Alexander Litvinenko þremur dögum áður en hann lést. Mynd:Getty

 

 

 

 

 

 

 

Þetta eru bara tvö dæmi um andstæðinga Pútíns sem hafa verið myrtir, bæði innanlands og utan. Sagt er að Pútín hafi lært hvernig er hægt að myrða fólk þegar hann var yfirmaður FSB á árunum 1998 og 1999.

Frá 2000 hefur Pútín stýrt Rússlandi með járnhnefa, andstæðingar hans eru ekki teknir neinum vettlingatökum, þeir hverfa, deyja eða eru sendir í fangelsi. Á þessum tíma hefur Pútín ekki farið leynt með stærsta markmið sitt. Það er að Rússland eigi aftur að verða sannkallað stórveldi eftir að Vesturlönd hafi áratugum saman grafið undan stöðu landsins.

Þetta virðist hafa orðið að þráhyggju hjá honum og sífellt öfgafyllra með hverju árinu. Það fór ekki fram hjá þeim sem áttu í samskiptum við hann. Til dæmis sagði Sylvie Bermann, sem var sendiherra Frakklands í Rússlandi, Pútín hafi breyst töluvert: „Það gerðist eitthvað. Hann er miklu reiðari og æstari þegar hann talar en hann var áður.“

Það virðist vera þessi reiði sem varð til þess að hann sendi rússneskt herlið inn í Úkraínu þann 24. febrúar.

Byggt á umfjöllun New York TimesBBCExpress og fleiri miðla auk heimildarmyndarinnar „PutinA Russian Spy Story“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“