fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Ráðleggur Finnum að ganga ekki í NATÓ

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 4. apríl 2022 09:00

Vaalimaa landamærastöðin á landamærum Rússlands og Finnlands. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Finnar útiloka ekki lengur að ganga í NATÓ. Þeir hafa áratugum saman gengið þröngan stíg þar sem þeir hafa haft gott vald á að hafa nágranna sína í austri, Rússa, rólega og styggja þá ekki. Á sama tíma hefur þeim tekist að vera með vestrænt efnahagskerfi, lýðræði, aðild að Evrópusambandinu og Norðurlandasamtarfinu.

En nú gæti orðið stefnubreyting hjá Finnum og þeir hugsað sér til hreyfings og inngöngu í NATÓ. Það er að sjálfsögðu innrás Rússa í Úkraínu sem hreyfir við þeim en nú telja þeir sig sjá svart á hvítu að ekki sé hægt að treysta Rússum, að minnsta kosti ekki á meðan Vladímír Pútín er við völd.

Finnskir fjölmiðlar segja að Sanna Marin, forsætisráðherra, hafi tilkynnt að ríkisstjórnin muni tilkynna þingi landsins fyrir páska hver afstaða hennar er til aðildar að NATÓ. Sérfræðingar túlka þessa tilkynningu sem jákvæða afstöðu til spurningarinnar um hvort Finnar eigi að sækja um aðild.

Peter Viggo Jakobsen, hernaðarsérfræðingur hjá danska varnarmálaskólanum, sagði í samtali við Jótlandspóstinn að Rússar muni bregðast við þessari tilkynningu: „Á næstu dögum geta Finnar vænst þess að rússneskar flugvélar eða skip heimsæki þá til að sjá hvort fælingarviðbragð þeirra virki.“

Hann benti á að rússneskar herflugvélar, sem geta borið kjarnorkuvopn, hafi nýlega flogið inn í sænska lofthelgi. Ástæðan sé að Svíar séu einnig að íhuga hvort aðild að NATÓ sé fýsilegur kostur.

Hann sagði að Rússar muni væntanlega kanna hvort þeir geti haft áhrif á afstöðu Finna en líklega muni þetta bara auka líkurnar á að Finnar gangi í NATÓ.

Hann sagði að Finnar eigi að hugsa sig vel um hvað varðar aðild að NATÓ. Ef þeir gangi í bandalagið muni Svíar einnig gera það. Það muni auka spennuna á svæðinu og þar með verði aukin vígvæðing: „Rússland mun láta óánægju sína í ljós með að auka hernaðarviðbúnað sinn. Þeir munu senda hermenn, flugskeyti eða eitthvað annað óþægilega nærri Finnland, nákvæmlega eins og NATÓ sendir flugskeyti og hernaðartól nær Rússlandi.“

Hann sagði að þetta geti valdið keðjuverkun sem minni á kalda stríðið. Út frá faglegu sjónarhorni sagðist hann ekki sjá ástæðu til að Finnar gangi í NATÓ því nú þegar séu bæði Svíþjóð og Finnland eiginlega aðilar. Ef ráðist verði á löndin muni NATÓ koma til aðstoðar. Það hafi Bandaríkjamenn einnig sagt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“