

Hann er sagður þjást af krabbameini í skjaldkirtli að sögn The Telegraph. Fram kemur að samkvæmt því sem Proekt segi þá hafi nafngreindur krabbameinslæknir frá Moskvu „heimsótt“ Pútín 35 sinnum í aðsetur hans í Sotji.
Roman Badanin, aðalritstjóri Proekt, sagði í samtali við Moscow Times að samtökin geti staðfest að heilsufar Pútíns hafi ekki verið gott á þessu kjörtímabili.
Dmitrij Peskov, talsmaður rússnesku ríkisstjórnarinnar, vísaði þessu á bug á föstudaginn og sagði þetta „skáldskap og lygi“.