fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Fréttir

Sigga Dögg: „Ég þurfti að fá að dvelja í smá þögn í gær“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 29. janúar 2022 12:24

Sigga Dögg. Mynd/Óttar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég þurfti að fá að dvelja í smá þögn í gær,“ segir kynfræðingurinn Sigríður Dögg Arnardóttir, sem er oftast kölluð Sigga Dögg, í pistlis sem hún birti á heimasíðu sinni í dag. Pistilinn birtir hún í kjölfar mikillar umræðu um kynfræðslu sem hófst eftir að kynjafræðingarnir Hanna Björg Vilhjálmsdóttir og María Hjálmtýsdóttir birtu pistilinn „Klám, kyrkingar og kynlíf“.

Pistill Hönnu og Maríu olli vægast sagt miklu fjaðrafoki í samfélaginu. Í honum sökuðu þær ónefndan kynfræðing um að kenna unglingum landsins kyrkingar í tengslum við kynlíf. Síðar sögðu þær að þær væru að tala um Siggu Dögg.

Að lokum mættust þær Sigga og Hanna í Kastljósi en Sigga var miður sín eftir þáttinn vegna framkomu Hönnu í þættinum. Hanna steig skömmu síðar fram og baðst afsökunnar á því hvernig hún lét í þættinum.

Sjá einnig:

Hanna Björg gagnrýndi Siggu Dögg harðlega í Kastljósi – „Þú normalíserar ofbeldishegðun og ég er á móti því“

Sigga Dögg með tárvotar kinnar eftir Kastljósið – „Ég hef aldrei lent í því að það sé talað svona til mín og við mig“

Hanna Björg „algjörlega miður“ sín vegna framkomu sinnar í Kastljósinu – „Ég virkaði hrokafull og dónaleg“

Finnur þakklætið og sársaukann

Í pistlinum sem Sigga birti á heimasíðu sinni í dag segist hún hafa fengið mikinn stuðning frá fólki eftir þetta allt saman. „Ég las yfir hundruði skilaboða (og næ enn ekki að komast yfir allt því um leið og ég svara þá bætist bara í sarpinn) og ég les hvert einasta orð og ég heyri í ykkur, ég skynja og finn þakklætið og líka sársaukann,“ segir hún.

„Þið rogist mörg hver áfram með sáraukafullar upplifanir af kynlífi og ofbeldi, trauma sem mótar ykkur og þið eruð að reyna heila og laga.  Ég finn líka hvað kynfræðslan skiptir ykkur miklu máli og hvað þið þráið að heimurinn verði betri fyrir komandi kynslóðir og þið vitið að aukin kynfræðsla er lífsnauðsynleg!“

„Hvað er nóg?“

Sigga segir að öll geti verið sammála um að það þurfi meiri kynfræðslu. „Það er gefið,“ segir hún.

„Sú kynfræðsla sem nú er við lýði í skólum landsins er alltof allskonar. Hjúkrunarfræðingar og margir kennarar eru að glíma við kerfi sem gefur þeim lítinn tíma og enn minni stuðning. Það eru einstaka skólastjórar sem setja kynfræðslu í forgang en þau mæta ósveigjanlegu kerfi.“

Þá spyr hún hvenær kennarar fái tíma og færi til að mennta sig í kynfræðslu og hver grípi kennara þegar erfiðar spurningar koma upp og þegar kemur að endurmenntun. „Og hvað á að kenna? Og hver á að gera það? Og hvenær? Og hvað er nóg?“ segir hún.

„Þessum spurningum reyndum við, starfshópurinn hennar Sólborgar, að svara í skýrslu sem er væntanlega… ofan í skúffu í Menntamenningarmálaskólaráðuneytinu.“

„Á meðan ákall er eftir meira samtali þá svara ég kallinu“

Sigga spyr þá hvað gerist svo. „Forsætisráðuneytið er með plan. Það er eitthvað. Er það nóg? Ég hreinlega veit það ekki. Ég held ekki,“ segir hún.

„Og á meðan ákall er eftir meira samtali þá svara ég kallinu. Það mega fleiri gera það. Ég sit ekki eins og ormur á gulli. Eina krafan er að fræðslan fari fram í fordómaleysi af fagaðila sem hefur menntað sig í kynfræðslu. Eða það er mín krafa, og ætti að vera ykkar líka, er það ekki? Og kannski að fagaðilar komi að þjálfun og undirbúningi þess fólks sem á að sinna kynfræðslu.“

Hún bendir þá á að kynfræðsla sé mannréttindi og vísar í skýrslu frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) mikilvægi fræðslunnar. Þá vitnar hún einnig í grein frá Medium sem henni finnst draga kynfræðslu og hindranirnir sem hún stendur fyrir ágætlega saman.

„Mega konur tjá sig án þess að vera stimplaðar móðursjúkar?“

Næst ræðir Sigga um klám. „Það er ríkir alger samstaða um að það sé ekki kynfræðsla. Það þarf að greina það og ræða það. Held að allir séu sammála um það. Er það ekki?“ segir hún.

„En þegar rætt er um klám þá þarf að ræða marga hluti og oft er stutt í að farið er að dæma kynhegðun sem ranga og rétta og það er ekki í boði. Það er í boði að tala um samþykki, mörk, nánd, samtal, virðingu, líkamstakmörk og getu og unað. Það er er hjarta kynfræðslunnar. Það er ekki hægt að afgreiða klám sem eitthvað eitt og neita svo að tala um það og rýna í, þó þér sem fræðara þyki það kannski ógeðfellt hegðun.“

Hún segir að í rauninni snýst þetta ekki um fræðarann heldur um samtalið og að fólki sé mætt með virðingu svo það þekki sig sjálft og geti lifað í sátt og samlyndi við sig og aðra. „Mörgum þykir erfitt að fara inn í þetta samtal og það er skiljanlegt. Þetta er drulluflókið. Þess vegna krefst það þjálfunar. Þjálfunar í að aðgreina sig frá umræðuefninu, að triggerast ekki, lita ekki umræðuna útfrá eigin kenndum og fordómum og reynslu og vera gagnrýninn,“ segir hún.

„Það eru ýmis aðilar að reyna vera með mótvægi við „mainstream“ klám eins og það er oft kallað. Mér kemur einna helst í hug Cindy Gallop – Make love, not porn. Og þýska verkefnið sem vinur minn og kollegi, Jack Lukkerz, var í og ég minnist á í myndbandinu. Eru þetta fullkomin verkefni? Nei. Er meira til? Já.“

Sigga spyr þá hvað fólk vilji gera þetta og hvernig eigi að gera það, hún segir það vera stórt samtal með mörgum og ólíkum röddum. „En það er samtal sem vert er að tala. Án þess að vera settur í flokkinn „tilfinningalegt uppnám“. Mega konur tjá sig án þess að vera stimplaðar móðursjúkar? “

Fleiri íslenskir kynfræðingar

Undir lok pistilsins ákveður Sigga að benda fólki á fleiri íslenska kynfræðinga. „Mig langar að nýta tækifærið og benda ykkur á nokkra aðra starfandi íslenska kynfræðinga sem einnig sinna kynfræðslu, á ólíkum skólastigum og til ólíkra hópa,“ segir hún.

„Sóley Bender er okkar fremsti fræðimaður á sviði rannsókna á kynfræðslu og kennir kúrsa tengdu kynheilbrigði við Háskóla Íslands.

Yvonne Kristín Fulbrigt er einnig sprenglærður kynfræðingur sem kennir við HR og HA auk bandarískra háskóla og er í samstarfi við Sóleyju um að uppfæra kynfræðsluefni sem Sóley skrifaði fyrir framhaldsskólakennara og nemendur. Þá er einnig hægt að sækja sér diplómu í kynfræði á framhaldsnámsstigi við Háskóla Íslands. Það er nefnilega til fullt af fagþekkingu! Svo ekki sé minnst á alla nemana sem elska að rannsaka kynfræðslu – þverfagleg þekking sem skapast þar.

Indíana Rós er mörgum kunn og var það magnað að hitta hana þegar hún var 17 ára gömul þar sem hún tilkynnti mér hátt og snjallt að hún ætlaði sér að verað kynfræðingur, hún ætlaði að vinna við mína vinnu. Ég bauð hana velkomna og sagði henni að ég skyldi gera hvað sem í mínu valdi stæði til að láta þann draum verða að veruleika. Og sjáiði hvar hún er núna?! Kynfræðingur í fullu starfi við einn grunnskóla fyrir utan höfuðborgarsvæðið! Það er ekkert smá afrek á skömmum tíma hjá skólakerfinu! Kynfræðingur í fullu starfi við skóla?! Það er magnað!

Og auðvitað Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur og kynlífsráðgjafi sem sinnir fullorðinsfræðslu og ráðgjöf. Og við kennum saman kúrs við HR sem heitir Almenn kynfræði og stendur sálfræðinemum til boða.

Birna er kannski nýjasti kynfræðingurinn okkar og er ákaflega öflug með fræðslu fyrir Losta og á samfélagsmiðlum.“

Þá segir hún að þetta séu ekki einu sinni upptalning á öllum kynfræðingunum. „Þetta eru bara þeir sem starfa núna við ólíka þætti kynfræðslu!“ segir hún.

„Jóna Ingibjörg var, og er, brautryðjandi í þessu samtali og hefur einmitt þurft að þola allskyns… ummæli og jafnvel rógburð um sig og sín störf því hún þorði að tala um málefni áður en landinn ákvað að það væri leyfilegt.“

Að lokum segir Sigga að starf kynfræðings felist ekki í þögninni. „Starfið felst í því að mæta öllum, sama hvar þau eru stödd, og vera til staðar, svara, fræða, hjálpa fólki að skilja sig og aðra,“ segir hún og þakkar svo að lokum fólki fyrir stuðninginn.

„Takk fyrir öll fallegu skilaboðin, hvatningu, að deila reynslu ykkar og samstöðuna! Við erum að breyta þessu landi og bæta það, ég finn það í hjartanu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna
Fréttir
Í gær

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun