Húsið við Skólagerði auglýst var til sölu fyrr á þessu ári og DV sagði frá, seldist á innan við tveimur vikum á 41,5 milljónir, samkvæmt afsali sem DV hefur undir höndum. Húsið gekk undir nafninu „hryllingshúsið,“ enda í gríðarlega slæmu ástandi.
Auglýsingin vakti mikla athygli um leið og hún birtist. Þegar opið hús var auglýst var mælt með að áhugasamir kæmu í hlífðarfatnaði að skoða húsið.
Í auglýsingunni var húsinu lýst sem staðsteyptu parhúsi sem þarfnast gagngerrar endurnýjunar vegna áratuga vanrækslu á viðhaldi og umhirðu. Eignin er skráð 204,2 fermetrar og er á tveimur hæðum auk kjallara. Lóðin er 419 fermetrar og í sama ástandi og húsið: Ónýt.
„Rakaskemmdir eru í öllum rýmum eignarinnar á öllum hæðum og áberandi mygla víðast hvar, ásamt öðrum óhreinindum,“ stóð í auglýsingunni. Þar sagði jafnframt:
„Lagnir eru tærðar/ónýtar ásamt viðvarandi raka/leka þar sem lagnir liggja í veggjum á nokkrum stöðum. Botnplata í kjallara þarfnast endurnýjunar þar sem hún er morknuð og ílögn brotin/götótt á nokkrum stöðum og að líkindum sýkt af myglusvepp, líkt og aðrir fletir. Endurnýja þarf allar lagnir, miðstöðvarlagnir, neysluvatnslagnir og fráveitu. Einnig rafmagnstöflu og annað raflagnaefni. Komast þarf fyrir raka í útveggjum, gólfflötum og berandi veggjum sem ganga niður í sökkul. Eignin þarfnast endurbóta á steyptum flötum ytra byrðis og endurnýja þarf allt tréverk, glugga, hurðir og þakkant. Þakklæðning þarfnast einnig endurnýjunar.“
Það reyndust nágrannar fyrri eiganda sem keyptu húsið, þau Zuzana Holbicková og Andrej Holbicka. Eru framkvæmdir þegar hafnar. Búið er að rífa svo til allt út úr húsinu, endurnýja þakið og skipta út neðanjarðar lögnum utan húss auk þess sem sökkull hússins hefur verið einangraður.