fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Sigurður G. hjólar í Guðna Th. og Elizu – „Gerendameðvirkni forsetaparsins þykir ekki fréttnæm“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 12. september 2021 23:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson sakar forsetahjónin Guðna Th. Jóhannesson og Elizu Reid um gerendameðvirkni auk þess sem hann ýjar að því að eitthvað á Bessastöðum þoli ekki dagsljósið.

Fékk að snúa aftur til starfa

Eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni kærði fyrrverandi starfsmaður forsetaembættisins kynferðislega áreitni samstarfsmanns hjá embættinu. Gagnrýndi maðurinn viðbrögð embættisins við áreitinu sem urðu að endingu til þess að hann hrökklaðist úr starfi og flutti frá Bessastöðum. Málin eru sögð teygja sig aftur til ársins 2015 en áreitnin náð hámarki í starfsmannaferð til Parísar árið 2018. Þá hafi meintur gerandi brotið bæði á kæranda í umræddu máli, sem og öðrum, og verið sendur í leyfi.

Hinn meinti gerandi fékk þó að snúa aftur til starfa sem kom þolandum í opna skjöldu. Þetta telur Sigurður G. að beri vott um gerendameðvirkni forsetahjónanna í pistli sem ber yfirskriftina „Ranglætinu fullnægt!“ og birtist á Facebook-síðu lögfræðingsins í kvöld.

„Forsetaparið tók virkan þátt í því að tryggja ráðsmanni sínum áframhaldandi starf á Bessastöðum. Parið lét sér í létturúmi liggja þó ráðsmaðurinn hafi beitt unga konu ofbeldi og hún hrakist úr starfi sem hún naut. Ætli parið hafi fylgst með líðan hennar og afkomu eftir að hún hrökklaðist úr starfi?,“ skrifar Sigurður G.

Hann fullyrðir svo að forsetahjónin hafi látið athugasemdir staðarhaldarans á Bessastöðum sem vind um eyru þjóta þegar upplýst var um endurkomu ráðsmannsins í sitt starf, þrátt fyrir að viðkomandi hafi beitt staðarhaldarann og konu hans ofbeldi í Parísarferð, og sýnt af sér sérkennilega háttsemi utan við forsetabústaðinn á Bessastöðum.

Eitthvað þoli ekki dagsljósið

„Ráðsmaðurinn fékk að sönnu áminningu; fór í leyfi og kom svo aftur til starfa eins og ekkert væri, þar sem forsetaparið fann sig ekki í því að segja ráðsmanninum upp vegna hagsmuna fjölskyldu hans.Forsetaparinu var sama um hagsmuni staðarhaldarans og fjölskyldu hans. Þau voru jú bara þolendur ofbeldis!,“ skrifar Sigurður.

Hann spyr sig síðan í hverju þessir hagsmunir fjölskyldu gerandans voru sem að hans mati Guðni Th. og Elizu var svo mikið í mun að vernda.„Var það rekstur eiginkonu ráðsmannsins frá heimili þeirra á Bessastöðum á ferðaþjónustu fyrir ferðamenn einkum frá Kína ?Var það kannski eitthvað annað sem komið hafði upp á Bessastöðum og ekki þoldi dagsins ljós ?“

Sigurður ýjar síðan að því ráðsmaðurinn hafi haft vitneskju um ólögmæta háttsemi embættismanns í starfsliði forseta ? „Getur verið að embættismaðurinn hafi látið ráðsmanninn afhenda sér til eigin afnota vín í eigu forsetaembættisins ? Slík háttsemi kann að vera refsivert auðgunarbrot, ef sönn er. Getur verið að forsetinn hafi haft spurnir af víntöku úr kjallaranum og því ákveðið fórna staðarhaldara í stað ráðsmanns í þeirri von að aldrei yrði spurt um ólögmæta meðferð á víni embættisins? Nú er spurt var vín tekið með ólögmætum hætti úr vínkjallara Bessastaða og vissi forsetinn um það ? Réttlætið á Bessastöðum virkar fremur sem ranglæti og gerendameðvirkni forsetaparsins þykir ekki fréttnæm ! Merkilegt nokk !“ skrifar Sigurður í hvössum tón.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work
Fréttir
Í gær

Tryggvi segir málið með ólíkindum – „Ég á það, ég má það“

Tryggvi segir málið með ólíkindum – „Ég á það, ég má það“
Fréttir
Í gær

Ófögur sjón mætti Kristjáni í gærkvöldi: „Maðurinn sem gerði þetta er í haldi lögreglunnar“

Ófögur sjón mætti Kristjáni í gærkvöldi: „Maðurinn sem gerði þetta er í haldi lögreglunnar“
Fréttir
Í gær

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“
Fréttir
Í gær

Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar

Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar
Fréttir
Í gær

Saxenda bætti lífsgleði, lífgæði, liðleika og úthald en SÍ neituðu að halda áfram að niðurgreiða

Saxenda bætti lífsgleði, lífgæði, liðleika og úthald en SÍ neituðu að halda áfram að niðurgreiða
Fréttir
Í gær

Meira en 10.000 kynsjúkdómatilfelli greind á Íslandi síðan 2020 – Sjáðu hvaða kynsjúkdómur er algengastur

Meira en 10.000 kynsjúkdómatilfelli greind á Íslandi síðan 2020 – Sjáðu hvaða kynsjúkdómur er algengastur