Gríðarlega margir bíða nú í röð til þess að komast í Covid-19 sýnatöku á Suðurlandsbrautinni. Röðin nær langt upp á Ármúlann og heitir sig í margar lykkjur svo hægt sé að koma meira fólki fyrir. Fjöldi fólks streymir stanslaust í enda raðarinnar sem virðist ekkert ætla að styttast.
71 einstaklingar greindust með Covid-19 hér innanlands í gær en þar af voru 39 utan sóttkvíar. Líklega munu tölur morgundagsins ríma við tölur síðustu daga, sérstaklega í ljósi þess hve margir eru að fara og hafa farið í skimun í dag.
612 manns eru nú í einangrun vegna veirunnar og 1.085 manns eru í sóttkví. Ekkert smit greindist á landamærunum í gær.