Hollt og gott ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Forsteikt smælki m/rósmarin.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send var á fjölmiðla.
Ástæða innköllunar er að varan inniheldur ofnæmisvaldinn soja sem er ekki tilgreindur á merkingum vörunnar. Neytendum með ofnæmi eða óþol fyrir soja getur stafað hætta af vörunni.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Neytendur sem eiga umrædda vöru og eru með ofnæmi eða óþol fyrir sojabaunum eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt, eða til Hollt og Gott, gegn fullri endurgreiðslu. Tekið skal fram að neytendum sem ekki eru með ofnæmi eða óþol fyrir sojabaunum er óhætt að neyta vörunnar.
Neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir sojabaunum ættu einnig að varast fyrri framleiðslulotur af vörunni sem geta innihaldið sama ofnæmisvald.