fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

„Syndaaflausnin“ sem aldrei varð – Sjáðu tímalínu atburða í lífi Jóns Baldvins – Flest brotin fyrnd eða utan lögsögu

Heimir Hannesson
Laugardaginn 20. febrúar 2021 09:15

mynd/Sigtryggur Ari, samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vika er nú liðinn síðan lögmenn aðila fluttu málsræður sínar í „meiðyrðamálinu sem skók landið.“ Málið var sagt hafa átt að vera „syndaaflausn“ Jóns. Sú syndaaflausn er nú sögð hafa sprungið í höndum hans. Tímalína yfir atburði í lífi Jóns er hér birt neðst í fréttinni.

Málið var upphaflega höfðað af Jóni Baldvini Hannibalssyni gegn dóttur hans, Aldísi Schram, blaðamanninum Sigmari Guðmundssyni og RÚV til réttargæslu vegna hugsanlegrar bótakröfu en málið varðar útvarpsviðtal sem Sigmar tók við Aldísi og birt var á Rás 2. Í þættinum sagði Aldís frá meintum brotum Jóns gegn sér og öðrum. Í grófum dráttum má skipta ásökunum Aldísar í tvennt. Annars vegar fjalla þær um meint kynferðisbrot Jóns, og hins vegar um aðkomu hans að nauðungarvistunum Aldísar. Hefur Aldís sagt aðkomu Jóns að nauðungarvistununum meiri en hann hefur sjálfur viðurkennt.

Árið 2012 birtust í fyrsta sinn opinberlega ósæmileg bréf sem Jón Baldvin hafði sent ungri frænku sinni, Guðrúnu Harðardóttur. Hún kærði hann siðar fyrir kynferðisbrot en málið var látið niður falla.

„Kynferðislegt óargadýr“

Mikill hiti var í réttarsal er vitnaleiðslur fóru fram í máli Jóns Baldvins gegn Aldísi en ró virtist hafa færst yfir aðila máls og áhorfendur þegar kom að munnlegum málflutningi lögmanna. Dómarinn í málinu hafði milligöngu um sættir í málinu í dómshléinu á milli fyrri og seinni hluta aðalmeðferðar. Skemmst er frá því að segja, að ekkert varð af sáttum.

Hafa verður í huga að málið sem nú bíður dómsuppsögu er eftir sem áður „einungis“ meiðyrðamál, þó skýrslugjöf vitna og umfjöllunarefnið hafi að mestu fjallað um ætluð kynferðisbrot Jóns Baldvins. Lögmaður Aldísar sagði í ræðu sinni að málið hafi bersýnilega átt að verða „syndaaflausn“ Jóns. Ef svo var er ljóst að sú syndaaflausn snerist við meðferð málsins upp í andhverfu sína.

Lögmaður Aldísar, Gunnar Ingi Jóhannsson, fór þá jafnframt hörðum orðum um Jón í ræðu sinni. Sagði að ekki mætti skilja annað af lestri frásagna kvenna á „metoo Jón Baldvin“ síðunni, en að Jón væri „kynferðislegt óargadýr“. Lýsti Gunnar því að ásökunum Aldísar hafi aldrei verið svarað öðruvísi af Jóni en með því að benda á Aldísi og segja ásakanirnar runnar undan rifjum hennar. Í sömu andrá hefur Jón rýrt trúverðugleika Aldísar með því að tefla fram ætluðum geðsjúkdómum hennar.

Brotin fyrnd eða utan lögsögu stjórnvalda

Flest brot sem Aldís sagði Jón hafa framið eru fyrnd. Kom fram í máli lögmanns Aldísar, að Aldís hefði tilkynnt brot Jóns til lögreglu, en þar sem hún væri sjálf löglærð hafi hún vitað að brotin væru fyrnd og því ekki kært. Niðurstaða tilkynningar Aldísar var einmitt sú, að brotin væru ýmist fyrnd eða að þau væru framin erlendis og íslensk lögregla hefði því ekki lögsögu í málinu. „Það átti eftir að nýtast honum vel síðar,“ skaut lögmaðurinn svo inn. Vísaði hann þar til þess að íslenskir dómstólar vísuðu nýverið ákæru Héraðssaksóknara gegn Jóni Baldvini fyrir kynferðisbrot í húsi Jóns á Spáni frá dómi þar sem ekki þótti sannað að verknaðurinn hafi stangast á við gildandi rétt þegar það var framið. Landsréttur staðfesti síðar úrskurð Héraðsdóms, og er það mál því úr sögunni fyrir fullt og allt.

Fyrningartími brota er mislangur eftir þeim viðurlögum sem lögð eru við brotunum í hegningarlögum. Til dæmis fyrnast brot sem varða fangelsi í fjögur til átta ár hið mesta á 15 árum og brot sem varða eins til fjögurra ára fangelsi fyrnast á tíu árum. Árið 2007 var fyrningarreglum breytt á þann veg að fyrningartími kynferðisbrota gegn börnum byrjar ekki að telja fyrr en barnið verður 18 ára gamalt.

Sú breyting sem þá var gerð var ætlað að vera afturvirk, á þann veg að fyrningarfrestur ófyrndra brota sem framin voru fyrir gildistöku laganna lengist. Tekist hefur verið á um lögmæti þessa atriðis í dómsmálum. Fyrningarfrestur brota rofnar, samkvæmt lögunum, þegar rannsókn sakamáls hefst. Þetta orðalag hefur einnig valdið heilabrotum meðal lögfræðinga og iðulega er um það deilt hvað „upphaf rannsóknar“ þýðir. Er það þegar brot eru kærð? Þegar brot eru færð í málaskrá lögreglu? Þegar ákæra er gefin út?

Langflest meint brot Jóns Baldvins eru þó nógu gömul til þess að vera óumdeilanlega fyrnd og því svo gott sem útilokað að þær ásakanir verði nokkurn tímann rannsakaðar.

Í dómsmáli Jóns gegn Aldísi fór mikið púður lögmanna í að ræða ásakanir Aldísar gegn Jóni um að hafa komið að nauðungarvistununum. Meðal annars var tekist á um það hvort að notkun Jóns á bréfsefni sendiráðs Íslands í Washington, er hann sendi yfirvöldum á Íslandi bréf um að Aldísi þyrfti að vista á geðdeild, teldist misnotkun á opinberu valdi. Aldís var nauðungarvistuð 1992 og aftur 2002. Í lögregluskýrslu um síðara málið stendur að umrætt atvik hafi verið skráð sem „aðstoð við erlent sendiráð.“

Ljóst er að sendiherra hefur ekki það vald sem hann var sagður hafa misnotað. Hins vegar er það enn vafa undirorpið hvort brotið hafi verið á rétti Aldísar af hálfu lækna á geðdeild, en fyrir liggur að ekki var leitað til dómstóla eins og átti að gera vegna mánaðarlangrar nauðungarvistunar Aldísar árið 2002.

Á fjórða tug kvenna yfir 60 ára tímabil

Ásakanirnar um brot Jóns á metoo síðunni sem helguð var Jóni varða brot sem eiga að hafa gerst á 60 ára tímabili. Það fyrsta árið 1962 þegar Jón var háskólanemi í Edinborg. Á fjórða tug kvenna hafa nú stigið fram, og um 20 undir nafni. Nú síðast stigu þrjár konur fram undir nafni og lýstu áreitni Jóns í ráðherrabústaðnum þar sem Jón var undir áhrifum áfengis. Samkvæmt frásögn þeirra kastaði Jón „rándýrum“ koníaksglösum ráðherrabústaðsins í gólfið áður en hann rauk inn í eldhús þar sem starfsfólk var að ganga frá eftir veislu kvöldsins. Mun Jón hafa kallað „mig vantar kvenmann“ áður en hann rauk aftan að einni konunni og greip um brjóst hennar.

Jón segist aldrei hafa komið inn í ráðherrabústaðinn eftir að hann sjálfur lauk störfum sem ráðherra og neitar ásökununum.

Sem fyrr sagði er nú vika liðin frá lokum aðalmeðferðar og hefur dómari því þrjár vikur til viðbótar til þess að kveða upp sinn dóm. Vegna umfangs málsins er líklegt að allur sá tími verði nýttur. Dóms er því líklega að vænta fyrstu vikuna í mars.

Tímalína yfir atburði í lífi Jóns Baldvins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi