fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025
Fréttir

Ekið á barn í Kópavogi – Grunaðir þjófar handteknir í Miðborginni

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 14. desember 2021 05:46

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um klukkan 18 í gær var ekið á 11 ára barn sem var að fara yfir gangbraut í Kópavogi. Það meiddist á hönd og var flutt með sjúkrabifreið á bráðadeild.

Á sjötta tímanum í gær voru tveir menn handteknir í Miðborginni, grunaðir um þjófnað úr búningsklefum í íþróttahúsi. Þeir voru vistaðir í fangageymslu.

Á sjöunda tímanum í gær var ofurölvi maður handtekinn í Laugardalshverfi. Hann hafði verið að trufla unga drengi sem voru á íþróttaæfingu. Hann er einnig grunaður um vörslu fíkniefna og þjófnað. Hann var vistaður í fangageymslu.

Á ellefta tímanum var ekið á tvær bifreiðar og stakk tjónvaldur síðan af. Hann var handtekinn skömmu síðar en hann er grunaður um ölvun við akstur og akstur án gildra ökuréttinda. Hann var vistaður í fangageymslu.

Einn ökumaður var handtekinn í nótt grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðan akstur án gildra ökuréttinda. Bifreið hans reyndist ótryggð og voru skráningarnúmerin tekin af henni.

Einn ökumaður var kærður fyrir að aka sviptur ökuréttindum í gærkvöldi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Starfsmaður fiskvinnslufyrirtækis lagði fram kæru eftir að hafa verið sagt að mæta í vinnuna í vinnslustöðvun

Starfsmaður fiskvinnslufyrirtækis lagði fram kæru eftir að hafa verið sagt að mæta í vinnuna í vinnslustöðvun
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Stefán segir skemmdarfýsn hafa ráðið för í Tjarnargarðinum – „Það hefur þurft að hafa ansi mikið fyrir þessu“

Stefán segir skemmdarfýsn hafa ráðið för í Tjarnargarðinum – „Það hefur þurft að hafa ansi mikið fyrir þessu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Erlendur síbrotamaður sem fór huldu höfði rekinn úr landi

Erlendur síbrotamaður sem fór huldu höfði rekinn úr landi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakamál klúðraðist vegna skyldleika lögreglumanns og brotaþola

Sakamál klúðraðist vegna skyldleika lögreglumanns og brotaþola
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flugdólgur handtekinn á Reykjavíkurflugvelli

Flugdólgur handtekinn á Reykjavíkurflugvelli
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Viktor segir að gervigreind skrifi ekki á vef Iceland Review og gerir athugasemd við umfjöllun Heimildarinnar

Viktor segir að gervigreind skrifi ekki á vef Iceland Review og gerir athugasemd við umfjöllun Heimildarinnar