fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Heimsmeistarinn Magnus sýnir miskunarleysi – Allir vorkenna niðurbrotna Rússanum

Björn Þorfinnsson
Miðvikudaginn 8. desember 2021 18:45

Magnus Carlsen er búinn að brjóta Nepó á bak aftur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er nánast óhætt að fullyrða að heimsmeistaraeinvíginu í skák sé lokið þrátt fyrir að því sé alls ekki lokið. Staðan í einvíginu er 6,5-3,5 fyrir ríkjandi meistara, Magnus Carlsen, sem virðist hafa gersamlega brotið áskoranda sinn, Ian Nepomniachti á bak aftur. Alls eru tefldar 14 skákir í baráttunni um titilinn eftirsótta og er einvíginu lokið þegar annar hvor keppandinn nær 7,5 vinningum. Heimsmeistarinn norski þarf því aðeins 1 vinninga í síðustu fjórum skákunum og það þarf kraftaverk að eiga sér stað til að koma í veg fyrir það.

Segja má að einvígið hafi hingað til skipst í tvo hluta -„Stálin stinn“ héti fyrri hlutinn og „Fullkomin bugun“ væri rétt heiti á seinni hlutanum.

Eftir fimm skákir var staðan jöfn, 2,5 – 2,5, og þá vældu skákáhugamenn yfir því hvað einvígið væri drepleiðinlegt. Carlsen tókst ekki að skapa nein vandamál fyrir Nepó og meira að segja var það heimsmeistarinn sem var nær því að lenda í taphættu en sá rússneski.Við hverjum leik heimsmeistarans var Rússinn með svar.

Í baksýnispeglinum sést nú hversu ótrúlega afrek það var að undirbúa sig svona vel og mæta öllum hugmyndum norsku ófreskjunnar yfir borðinu. Að endingu reyndist sú þrekraun Nepó um megn og eitthvað lét undan. Það var þó engin engin eðlileg miðaldarpynting sem varð til þess – sennilega mesti drullukreistingur í sögu heimsmeistaraeinvígja.

Til að lesendur átti sig á aðstæðum þá taka flestar skákir atvinnumanna í kringum 40. leiki. Ef skákinni er ekki lokið eftir þessa 40.leiki þá er að minnsta kosti nokkuð ljóst í hvað stefnir. Ekkert að þessu átti við um sjöttu skákina –  Carlsen pyntaði Nepó í tæpa 140. leiki og það varð ekki ljóst fyrr en undir lokin í hvað stefndi. Lengi vel leit út fyrir að Rússinn myndi ná að hanga á jafntefli en að lokum stóðst hann ekki pressuna, gerði smávægileg mistök sem sá norski greip fegins hendi og herti á skrúfustykkinu. Virkilega ógeðfellt enda kenna flestir atvinnumenn í brjóst um Nepó, þar á meðal þekkti byrjanasérfræðingurinn Grzegorz Gajewski.

Það er ógeðslega erfitt að tapa svona mikilvægri skák og það er enn erfiðara í aðstæðum með þessum. Með heiminn að horfa á mikilvægustu skákir lífs þín og þurfa svo að þola svona meðferð. Ljóst er að Nepó skorti andlegt þrek til þess að takast á við þessa raun. Sjöunda skákin endaði með tíðindalitlu jafntefli en í áttundu og níundu umferð lét Carlsen kné fylgja kviði og vann tvo sigra í röð.

Í þessum skákum gerði rússneski skákmeistarinn sig sekan um nokkur slæm mistök sem að hann gerir ekki öllu jafnan. Það er einfaldlega búið að brjóta hann á bak aftur – hann liggur blóðugur upp við kaðlana í boxhringnum með reitunum sextíu og fjórum.

Í tíundu skákinni, sem fór fram í dag, reyndi hann varla að hrista upp í hlutunum þrátt fyrir að verða að vinna skákina. Hann sætti sig einfaldlega við annað tíðindalítið jafntefli og líklega er hann farinn að huga að heimför.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“