Jófríður tjáði sig um þetta á Twitter í fyrrakvöld og skrifaði: „Ég var 16 ára og hann 36 ára, hann notfærði sér það. Hann vissi hvað ég var gömul. Hann reyndi að followa mig á insta um daginn mörgum árum seinna, ældi næstum upp í mig. Fer svo að grenja í viðtali og lætur eins og kjáni og fórnarlamb. Dreptu mig ekki #kveikur“.
Ég var 16 ára og hann 36 ára, hann notfærði sér það. Hann vissi hvað ég var gömul. Hann reyndi að followa mig á insta um daginn mörgum árum seinna, ældi næstum upp í mig. Fer svo að grenja í viðtali og lætur eins og kjáni og fórnarlamb. Dreptu mig ekki #kveikur
— jófí 🥦 (@jofiskafta) November 2, 2021
Í samtali við Stundina sagði Jódís að Þórir hafi notfært sér ungan aldur hennar fyrir sjö árum og að viðtalið við Þóri hafi ýtt undir gerendameðvirkni í samfélaginu og geri lítið úr þolendum kynbundins ofbeldis.
Hún sagði einnig að sér hafi brugðið þegar hún sá kynningu þáttarins og hafi ekki vitað hvort hún ætti að hlæja eða gráta. Síðan hafi hún fyllst reiði því hún viti ekki til þess að Þórir hafi beðið þær konur, sem hann er sakaður um að hafa komið illa fram við, afsökunar.
„Þetta viðtal og viðbrögð margra við því er hlandblaut tuska í andlitið á þolendum. Ég er orðin langþreytt á því hvernig umræða um kynferðisbrot er hér á landi. Gerendum er hampað og þolendur eru skrímslavæddir. Þolendur eru sakaðir um að eyðileggja líf og frama gerenda sinna með því að stíga fram, meðan þeir sjá alveg um það sjálfir með sínum gjörðum og algjörum skorti á iðrun,” sagði hún við Stundina.
Hún sagði að málið hafi tekið mjög á hana en hún hafi unnið mikið úr því á þeim sjö árum sem eru liðin. „Þetta var fyrir sjö árum. Ég var mjög ringluð á þessum aldri og brotin. Ég hitti hann eftir að við höfðum náð saman á Tinder. Í prófílnum mínum þar stóð að ég væri 18 ára en þegar ég og Þórir hittumst sagði ég honum strax að ég væri 16 ára. Honum fannst ekkert athugavert við það og við sváfum saman. Það var ekki þvingað samræði, en ég var svo ung og brotin að strax daginn eftir lokaði ég á öll samskipti við hann og reyndi að gleyma því sem hafði gerst. Mér leið mjög illa en kunni ekki að orða það sem ég veit í dag að var valdamismunun. Hann var ekki bara helmingi eldri en ég, og ég unglingur, heldur var hann líka frægur leikari,“ sagði hún.