fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Bókunum í flug hingað til lands fjölgar ört

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 10. maí 2021 09:00

mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Markaðsherferðir í  Bandaríkjunum eru farnar að skila sér og bókunum er farið að fjölga hjá Icelandair. Ekki einungis í maí og júní heldur einnig lengra fram í tímann. Þetta segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Morgunblaðið skýrir frá þessu. Hann sagði að ánægja ríki með þróun mála og að jákvæð teikn sjáist fyrir haustið. „Við erum bjartsýn á að Ísland hafi mikil tækifæri sem áfangastaður ferðamanna og að það verði mikil eftirspurn eftir því að koma hingað,“ er haft eftir honum.

Í lok maí verður áætlunarflug til sex áfangastaða í Bandaríkjunum á vegum Icelandair og sagði Bogi að bókanir hafi verið að taka vel við sér þar í landi. Hann sagði að leiðakerfi félagsins væri nú að fara í gang og að félagið finni fyrir miklum áhuga á öðrum mörkuðum en þar hafi bókanir verið færri vegna ástandsins í löndunum.

Hann sagði að jákvæð þróun sjáist nú á breska markaðnum en Ísland var sett á grænan lista þarlendra yfirvalda fyrir helgi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“
Fréttir
Í gær

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer
Fréttir
Í gær

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögmaður fór dagavillt og því þarf að byrja allt málið upp á nýtt

Lögmaður fór dagavillt og því þarf að byrja allt málið upp á nýtt