fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Ískyggileg staða – Þórólfur hugleiðir næstu skref – FRÉTTIN ER UPPFÆRÐ

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 24. mars 2021 09:17

Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjördís Guðmunsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, var ekki tilbúin að gefa upp tölur yfir Covid-smit gærdagsins er DV hafði samband við hana laust fyrir kl. 9 í morgun. Sagði hún að tölurnar kæmu kl. 11. Hún sagði ekki rétt að smit gærdagsins skiptu tugum en þau væru all nokkur.

„Þegar tölurnar koma inn á eftir að vinna úr þeim, t.d. kanna hvort smitaðir séu með mótefni. Það er ástæða fyrir því að tölurnar eru birtar kl. 11 en ekki fyrr,“ segir Hjördís.

Hún staðfesti að tveir grunnskólar væru núna í úrvinnslusóttkví, Laugarnesskóli og Laugalækjarskóli. Sá síðarnefndi vegna fjölskyldutengsla milli skólanna. Smit hafa eingöngu greinst hjá skólabörnum í Laugarnesskóla til þessa.

Hjördís segir að smit fleiri en skólabarna hefðu greinst í gær og einhver utan sóttkvíar. Segir hún mögulegt að blásið verði til upplýsingafundar í dag en það er í óvissu. Þórólfur sé hreinlega að meta stöðuna varðandi það hvort hann skili tillögum að hertum aðgerðum í dag og hvort haldinn verður upplýsingafundur.

Breska afbrigðið leggst á börn

Sá fjölmiðlamaður sem einna mest hefur sérhæft sig í Covid er Björn Ingi Hrafnsson. Hann segir í nýrri færslu á Facebook:

„Hræddur er ég um að nýjar COVID-19 tölur í dag og næstu daga muni koma illa við marga. Breska afbrigðið hefur mikla smitgetu og leggst frekar á börn en fyrri útgáfur þessarar mögnuðu veiru sem er alls ekkert hætt. Förum varlega kæru vinir svo við lendum ekki í sömu súpu og nágrannaþjóðirnar sem ráða ekki neitt við neitt.“

Uppfært kl. 9:30

Upplýsingafundur vegna fjölda smita verður haldinn kl. 11. Almannavarnir og embætti landlæknis boða til fundarins.

Uppfært kl. 10:10

Hætt við upplýsingafund. Tilkynning var að berast frá Almannavörnum þess efnis að hætt hefði verið við fyrirhugaðan upplýsingafund. Upplýsinga er að vænta síðar í dag.

Uppfært kl. 10:15

Samkvæmt Fréttablaðinu greindust 11 börn úr Laugarnesskóla af Covid-19 í gær. Þetta staðfestir Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdóma á Landspítalanum.

Þetta eru ekki einu innanlandssmitin sem greindust í gær en fréttir af smittölum gærdagsins verða birtar kl. 11.

Uppfært kl. 10:25 – 16 innanlandssmit

Samkvæmt RÚV greindist 21 kórónuveirusmit í gær. Sextán smit greindust innanlands og fimm við landamærin. Af þessum 16 voru 11 börn úr Laugarnesskóla. Tíu barnanna voru utan sóttkvíar.

Uppfært kl. 11: Aðeins þrír utan sóttkvíar

Hjördís Guðmunsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, kemur með staðfestar tölur yfir Covid-smit dagsins. Það eru 17 innanlandssmit, þar af þrír utan sóttkvíar. Landamærasmit eru fimm. Hjördís segir óljóst á þessari stundu hvort og hvenær verður boðað til upplýsingafundar í dag. Hún gat ekki staðfest að hertar samkomutakmarkanir yrðu ákveðnar í dag en málið er í vinnslu hjá Þórólfi sóttvarnalækni.

Uppfært kl. 11: Ríkistjórnin fundar um hertar sóttvarnaaðgerðir

Samkvæmt frétt Vísis fundar ríkisstjórnin núna um hertar sóttvarnaaðgerðir innanlands. Ríkisstjórnin fær tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um hertar aðgerðir í hendur síðar í dag. Þórólfur er tilbúinn með minnisblað um hertar sóttvarnaaðgerðir sem hægt er að grípa til ef þörf er á.

Uppfært kl. 13

Ríkisstjórnin fundar um minnisblað Þórólfs sóttvarnalæknis um hertar aðgerðir. Boðað verður til blaðamannafundar síðar í dag vegna málsins en óljóst er hvenær það verður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Smásmugulegur leigusali fékk ekki bætur vegna ófullnægjandi þrifa leigutaka

Smásmugulegur leigusali fékk ekki bætur vegna ófullnægjandi þrifa leigutaka
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar