Í þættinum ræddu Logi og Sigmar meðal annars um rasisma. Sigmar nefnir viðtal sem Unnsteinn Manuel Stefánsson, bróðir Loga, tók við Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Viðtalið við Geir var um grein sem hann hafði skrifað sem ungur maður í MR. „Bara grein sem er auðvitað ekkert annað en rasísk, að hér ætti ekki að koma inn svart fólk og eitthvað í þá veruna.“ segir Sigmar.
„Hann er að spyrja Geir um þetta, löngu, löngu síðar,“ segir Sigmar. „Geir auðvitað segist ekkert kannast við þennan mann sem þarna skrifaði, þetta sé bara vanþekking og fordómar og biðst afsökunnar á þessu. Við sjáum auðvitað ekkert í pólitík Geirs, hvað svo sem mönnum finnst um hann yfir höfuð, að hann sé einhver rasisti. Hvað gerum við með svona dæmi?“
„Ég man þegar það birtust fyrst fréttir um þennan pistil eða þetta blað sem kom út, MR-skólablað á sínum tíma,“ segir Logi og lýsir því hvernig honum leið þegar hann sá þetta. „Mín fyrstu viðbrögð eru auðvitað bara, mér finnst þetta ógeðslegt og alveg bara hryllilegt að sjá þetta. Ég veit ekki í hvaða umhverfi þetta varð til hjá Geir en það eina sem hægt er að gera í þessu var auðvitað bara að gangast við þessum mistökum og bara afgreiða það þannig.“
Logi segir að í öllum þeim umræðum sem eru í gangi um þessi mál er það oftast nóg að gera upp söguna og gangast við því. „Þarna voru gerð mistök, þetta er ekki maðurinn sem ég hafði að geyma og ég vona að það hafi sést, eins og Geir sagði,“ segir hann.
„Ég held að, án þess að ég fari eitthvað að greina pólitík Geirs eitthvað djúpt, þá er nú samt alveg hægt að segja að það hafi ekki verið keyrt á xenófóbíu í hans pólitík. Það er náttúrulega aðdáunarvert að sjá þetta viðtal. Aðdáunarvert að sjá þennan mann gangast við þessum mistökum og ræða þau efnislega og það er líka bara leiðin áfram. “
Sigmar skýtur þá inn í að menn bregðist ekki alltaf við eins og Geir gerði í viðtalinu. „Menn til dæmis fela sig stundum á bak við grín, að það megi allt í gríni,“ segir Sigmar og Logi svarar því. Hann talar um umhverfið hér á Íslandi þegar kemur að svona gríni. „Eins og fyrir íslenskan grínista eða íslenskan vinahóp, það er kannski gaman að grína með að leika einhvers konar skrípamynd af asískri konu eða svörtum manni eða hvernig sem það er,“ segir hann.
„En fyrir Íslendingana sem að eru asíska konan eða svarti maðurinn eða þekkja asísku konuna og svarta manninn þá er þetta náttúrulega bara, þetta er ekkert gaman. Þetta er ekkert smekklegt.“
Hér má sjá þáttinn í heild sinni