fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Segir Ísland stefna í „útópíu sýklahrædda einfarans“

Jón Þór Stefánsson
Föstudaginn 25. september 2020 10:07

Árni Helgason - mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árni Helgason, lögmaður og pistlahöfundur Fréttablaðsins skrifaði um áhrif heimsfaraldurs kórónaveriunnar í pistli sínum í Fréttablaðinu í dag. Þar talaði hann um þau gífurlegu áhrif sem veiran hefur á félagslíf landans, sem hann líkir við japanska hugtakið „hikikomori“.

Kórónaveiran gefur okkur engin grið. Við lokuðum landamærunum í sumar og vonuðum það besta en það dugði ekki til. Nú er blásið til sóknar varðandi okkar eigin persónulegu sóttvarnir.“

Árni minnist á að þeir sem að áður töluðu hátt, þurfa nú að tala lágt, þeir sem að áður knúsuðu og tóku mikið í hendurnar á öðrum þyrftu að sleppa því og þeir sem áður djömmuðu mikið þyrftu að gera talsvert minn af því.

„Þannig fengu til dæmis hinir háværu og raddsterku skýr skilaboð í gær frá landlækni um að nota inniröddina þar sem veiran smitast frekar þegar talað er hátt.

Knúsarar og handabandsóða fólkið mun áfram þurfa að gæta sín enda er sá sem mætir á mannamót baðandi höndunum framan í nærstadda bara tifandi tímasprengja á þessum síðustu og verstu.

Sömu sögu má segja um þá sem finnst gott að kíkja á djammið og fá sér einn, jafnvel tvo og öskursyngja nokkur lög. Einu sinni þótti tilvalið að birta myndir úr slíkum leiðangri á samfélagsmiðlum en í dag yrði því ekki andað við nokkurn mann ef maður hefði til dæmis slysast í karókí á írskum pöbb.“

Hann telur að haldi ástandið áfram í þessa átt stefni Ísland í „útópíu sýklahrædda einfarans“. Þá minnist hann á hugtakið „hikikomori“, orð sem er notað yfir ungt fólk sem vill helst einangra sig sem mest, án nokkurrar ástæðu.

„Við stefnum hraðbyri í einhvers konar útópíu sýklahrædda einfarans, þar sem blaðskellandi og hávært gleðifólk á undir högg að sækja. Þetta er okkar eigið hikikomori en það er ástand sem japönsk heilbrigðisyfirvöld hafa skilgreint og tengja við ört stækkandi hóp af ungu japönsku fólki sem vill helst búa eitt og einangra sig frá samfélaginu mánuðum og jafnvel misserum saman án þess að nein sýnileg ástæða eða orsök sé fyrir hendi.“

Að lokum segir Árni þó að ástandið verði ekki svona að eilífu, en þegar það verði búið muni mikið þurfa til að koma félagslífi landans aftur í gang.

„Þetta draumaland einfarans á þó ekki eftir að vara að eilífu. Þegar við komum loks böndum á kórónaveiruna bíður okkar mikið verk. Hér þarf að snúa hjólum atvinnulífsins í gang á ný en ekki síður hjólum félagslífsins. Slíkt mun útheimta ómælda vinnu við knús og karókísöng.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga