fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Fréttir

Smit í matsölu Háskóla Íslands

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 15. september 2020 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fleiri staðfest tilvik COVID-19 hafa greinst meðal starfsmanna Háskóla Íslands, annað þeirra hjá starfsmanni í Hámu, matsölu skólans.

Í tölvupósti Jóns Atla Benediktssonar, rektors til nemenda segir.

„Því miður hafa komið upp tvö ný staðfest COVID-19 smit hjá starfsfólki á háskólasvæðinu. 

Smit hefur verið staðfest hjá starfsmanni í Setbergi – húsi kennslunnar og hjá starfsmanni Hámu á Háskólatorgi.“ 

Allir starfsmenn Hámi hefur verið sett í sóttkví og veitingastaðnum hefur verið lokað tímabundið. Smitrakningarteymi almannavarna metur þó áhættu viðskiptavina Hámu óverulega og þurfa þeir ekki að fara í sóttkví.

Rektor hvetur nemendur til að nýta sér gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu Háskólans ef þeir telja þörf á.

Eins telur hann brýnt að ráðstefnur, málþing og fundir verði alfarið með rafrænum hætti.

„Verði ekki komist hjá því að hittast skal gæta ítrustu varkárni og helst að bera andlitsgrímur. Þá hvet ég nemendur og starfsfólk eindregið til að fresta eða fella niður allt samkomuhald á Háskólasvæðinu.“ 

Í gær var greint frá því að Jón Atli rektor sé kominn í sóttkví auk tveggja starfsmanna Aðalbyggingar Háskóla Íslands eftir að smit greindist hjá starfsmanni um helgina.

Jón Atli hvetur nemendur til að huga að smitvörnum og fylgja reglum almannavarna til hins ítrasta. Eins hvetur hann nemendur og starfsfólk til að nota smitrakningarappið.

„Það er vissulega afar leitt að þessi staða sé komin upp en við vitum að þetta er tímabundið og samstaða okkar hefur aldrei verið mikilvægari en nú til að sigur vinnist. 

Hugum hvert að öðru og beinum sjónum að því jákvæða í tilverunni“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
Fréttir
Í gær

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“
Fréttir
Í gær

Gullöld Donald Trump: Allt gengur forsetanum í hag

Gullöld Donald Trump: Allt gengur forsetanum í hag
Fréttir
Í gær

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússar breyta um taktík – Írönsku drónarnir verða sífellt hættulegri

Rússar breyta um taktík – Írönsku drónarnir verða sífellt hættulegri