Lögregluaðgerð með aðkomu Sérsveitar lögreglunnar var í gangi í Völlunum á Hafnarfirði undir kvöld. Að sögn Skúla Jónssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns, sem DV ræddi stuttlega við, er tilkynningar að vænta frá lögrelgu um málið innan skamms.
Uppfært kl. 18:35: Einn maður var handtekinn í aðgerðunum, samkvæmt RÚV. Fjölmiðlar bíða enn tilkynningar lögreglu vegna málsins. Aðgerð er lokið.
Eftirfarandi kemur fram í tilkynningu frá lögreglu um málið: Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í Skarðshlíðarhverfi í Hafnarfirði á sjöunda tímanum í kvöld eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Sérsveitar ríkislögreglustjóra, en upphaf málsins var tilkynning sem barst rétt fyrir klukkan fimm um mann sem ógnaði pari með eggvopni við Skarðshlíðarskóla. Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna málsins og var nærliggjandi götum lokað á meðan leitin að manninum stóð yfir, en hann fannst í nærliggjandi húsi. Engan sakaði, en fólkinu sem var ógnað við Skarðshlíðarskóla var mjög brugðið.