Líkt og að flestir ættu að vita þá fara fram forsetakosningar í dag. Kjörstaðir opnuðu klukkan níu í morgun. Bæði Guðni Th. Jóhannesson, sitjandi forseti, og Guðmundur Franklín Jónsson, mótframbjóðandi hans, mættu snemma á kjörstað.
Guðni kaus í Álftanesskóla og Guðmundur Franklín í Menntaskólanum við Sund.
Kjörstaðir munu loka klukkan tíu í kvöld, en búist er við fyrstu tölum frá einstaka kjörstöðum fljótlega eftir lokun kjörstaða. Guðni hefur mælst með 93% stuðnings í skoðanakönnunum Gallup síðustu vikuna.