fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Starfsmenn umdeilds fyrirtækis áttu heima í húsinu – Spáðu því að stökkva þyrfti út um gluggan skyldi kvikna í

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 25. júní 2020 19:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líkt og fjölmiðlar hafa greint frá þá kviknaði í húsi á horni Vesturgötu og Bræðraborgarstígs í dag. Umrætt hús hefur áður komist í fjölmiðla. Stundin fjallaði meðal annars um það árið 2015. Þar er rætt um þá miklu hættu sem myndi koma upp í eldsvoða í húsinu og annað sem ekki var í góðu ástandi.

„Ef kviknaði í stigaganginum yrði fólk að steypa sér gegnum gluggana af 2.-3. hæð eða verða eldsmatur. Rafmagnið í húsinu ber merki um mikið fúsk, snúrur hanga niður af veggjum og er illa gengið frá.“

Samkvæmt grein Stundarinnar var ástandið í húsinu sérstaklega slæmt, til dæmis er talað um rakaskemmdir og líklegan myglusvepp.

Eitt umdeildasta fyrirtæki landsins – gamla Menn í vinnu

Samkvæmt heimildum DV var húsið sem um ræðir í umsjón starfsmannaleigunnar Seiglu, fyrirtækis í eigu sömu aðila og ráku áður fyrirtækið Menn í vinnu, á annarri kennitölu.

Menn í vinnu ehf. fékk á sig mikla gagnrýni á sínum tíma. Fyrirtækið ætlaði sér að reka starfsmenn fyrirtækisins úr húsunum sem þeir bjuggu í. Þeir höfðu samband við fjölmiðla og stéttarfélög og kvörtuðu undan vangoldnum launum, hótunum og  illri meðferð.

Vöruðu við fyrirtækinu

Efling stéttarfélag varaði fólk við fyrirtækinu á sínum tíma:

„Fyrri forsvarsmenn og skuggastjórnendur fyrirtækisins róa engu að síður á sömu mið enn á ný undir öðru nafni og annarri kennitölu. Fyrirtækið nýstofnaða heitir Seigla ehf., og ráðleggur Efling fólki að hafa vara á sér gagnvart þessari nýstofnuðu starfsmannaleigu.“

Á samfélagsmiðlum hafa margir gagnrýnt Seiglu fyrir að láta starfsmenn sína búa í húsi sem varað hafði verið við. Leiða má líkur að því að starfsmennirnir hafi ekki valið að búa þarna.

Samkvæmt heimildum DV búa starfsmenn Seiglu einnig í iðnaðarhúsnæði við Kársnesbraut sem margoft hafa verið gerðar athugasemdir við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu