fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Fréttir

Drukknir menn sögðust vera með COVID-19

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 9. apríl 2020 07:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laust eftir klukkan ellefu í gærkvöld hafði lögreglan afskipti af öfurölvi manni í hverfi 105 í Reykjavík. Maðurinn gat ekki gert grein fyrir sér eða hvar hann byggi.  Þá sagðist maðurinn vera smitaður af Covid-19  en sagði síðan að það væri bara grín.  Maðurinn var vistaður sökum ástands  í fangageymslu lögreglu.

Þetta kemur fram í Dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Um hálfvöleytið í nótt var maður í annarlegu ástandi handtekinn í miðbænum í Reykjavík grunaður um eignaspjöll og brot á vopnalögum.  Maðurinn sagðist vera smitaður af Covid-19 er lögreglumenn höfðu af honum afskipti en sýndi engin merki um smit. Maðurinn var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.

Um hálfþrjúleytið í nótt var bíll stöðvaður í Kópavogi. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og farþegi er grunaður um vörslu fíkniefna. Bæði ökumaður og farþegi eru aðeins 17 ára og var málið unnið með aðkomu foreldra og tilkynningu til Barnaverndar.

Í gærkvöld  var tilkynnt um ofurölvi konu til vandræða í hverfi 110.  Ekki náðist að koma konunni heim sökum ástands og varð hún að gista í fangageymslu lögreglu meðan ástand hennar batnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
Fréttir
Í gær

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“
Fréttir
Í gær

Gullöld Donald Trump: Allt gengur forsetanum í hag

Gullöld Donald Trump: Allt gengur forsetanum í hag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússar breyta um taktík – Írönsku drónarnir verða sífellt hættulegri

Rússar breyta um taktík – Írönsku drónarnir verða sífellt hættulegri