fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Björn var kallaður á teppið: „Kannski ætti ég að fara í skó áður en ég kvarta“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 26. febrúar 2020 08:30

Björn Leví Gunnarsson. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segist hafa verið kallaður inn til skrifstofustjóra Alþingis eitt sinn þar sem hann var spurður hvort hann gæti farið í skó. „Það hafði nefnilega borist kvörtun,“ segir Björn Leví í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Eins og kunnugt er hafði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra orð á því á dögunum að Björn Leví kæmi á sokkaleistunum upp í ræðupúlt Alþingis. Björn gerir góðlátlegt grín að þessu í pistlinum þó undirtónninn sé alvarlegur. Þar rekur hann nokkur mál þar sem lítið virðist hafa verið hlustað á hann eða samherja hans í þingflokki Pírata.

„Einu sinni var skýrslu um skattaundanskot Íslendinga í gegnum skattaskjól stungið undir stól. Það var meira að segja rétt fyrir kosningar vegna skattaundanskots fyrrverandi forsætisráðherra í gegnum skattaskjól (sem er opinberlega staðfest í úrskurði yfirskattanefndar). Píratar kvörtuðu og spurðu hvað væri eiginlega í gangi, hvernig gæti þetta gerst án þess að einhver axlaði ábyrgð?“

Björn Leví nefnir næst Landsdómsmálið þar sem hæfari dómarar þurftu að víkja fyrir síður hæfum umsækjendum. Upplýsingum álit sérfræðinga hafi verið haldið frá Alþingi. „Píratar kvörtuðu og spurðu hvað væri eiginlega í gangi. Hvernig ráðherra gæti komist upp með svona ákvarðanir. Ekkert gerðist fyrr en þeir umsækjendur sem gengið var fram hjá sóttu rétt sinn.“

Hann heldur svo áfram:

„Einu sinni var fjallað um rökstuddan grun og þrátt fyrir játningu í Kastljósi þá mátti ekki taka mark á spurningunni, hvort misfarið hefði verið með almannafé. Píratar kvörtuðu og spurðu hvort þetta mætti en ekkert var gert. Jú, það varð að refsa fyrir að spyrja. Það er brot á siðareglum að spyrja spurninga þó þær byggist á játningum.“

Hann nefnir svo að eitt sinn hafi laun þingmanna og ráðherra og verið hækkuð daginn eftir kosningar. Píratar hafi kvartað, spurt um rökstuðning og jafnvel farið með málið fyrir dóm þar sem því var vísað frá. „Þingmaður og eitt stærsta verkalýðsfélag Íslands voru ekki aðilar máls sem snerist um ákvörðun kjararáðs um laun þingmanna.“ Hann nefnir svo að lokum að hann hafi sjálfur einmitt verið kallaður til skrifstofustjóra þingsins vegna kvörtunar um að hann væri ekki í skóm.

„Einu sinni spurði ég fjármálaráðherra hvort hann hefði tekið ákvörðun um að greiða ekki dráttarvexti vegna ólöglegra afturvirkra skerðinga. Sú ákvörðun kostar 700 milljónir króna sem lífeyrisþegar virðast eiga rétt á miðað við dómsorð. Fjármálaráðherra svaraði ekki spurningunni en sagði óbeint að ég ætti að vera í skóm. Það væri ekki hægt að taka spurningu mína alvarlega af því að ég væri í ósamstæðum sokkum,“ segir Björn Leví sem endar pistilinn á léttum skotum á ríkisstjórnina og kollega sína á Alþingi.

„Kannski ætti ég að fara í skó áður en ég kvarta yfir því að ráðherra feli skýrslu fyrir Alþingi og þjóðinni. Kannski ætti ég að fara í skó áður en ég kvarta undan því að ráðherra taki geðþóttaákvarðanir í skipun dómara. Kannski ætti ég að fara í skó áður en ég kvarta undan því að þingmaður játar að hafi farið með almannafé á vafasaman hátt. Kannski ætti ég að fara í skó áður en ég spyr hvort ráðherra hafi tekið ákvörðun um að reyna að hafa 700 milljónir af lífeyrisþegum. Kannski verður hlustað á mig ef ég er í skóm. (Höfundur er skólaus.)“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala