fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Fréttir

Helgi Hrafn um leyfislausa lýtalækninn – „Þetta er hlutinn sem skiptir máli“

Heimir Hannesson
Þriðjudaginn 8. desember 2020 09:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata og vísindahyggjumaður með meiru, lagði sitt á vogaskálarnar í gærkvöldi í umræðunni um Elísabetu Guðmundsdóttur, lýtaskurðlækni sem farið hefur mikinn í gagnrýni sinni á takmörkunum á daglegu lífi þjóðfélagsþegna vegna Covid-19 faraldursins.

DV sagði frá því í október að Elísabetu hefði verið sagt upp starfi sínu á Landspítalanum. Sagði Elísabet að henni hefði ekki verið gefin nein ástæða fyrir uppsögninni, en að henni grunaði að hún hafði með gagnrýni sína á yfirvöld að gera. Um helgina sagði DV svo frá því að Elísabet væri ekki lengur á starfsleyfaskrá Landlæknis. Leyfisleysi hennar hefur síðar verið staðfest af heilbrigðisyfirvöldum. Ef gengið er út frá því að hún hafi verið með læknaleyfi sitt gilt þegar hún var ráðin inn á spítalann 1. apríl síðastliðinn, er ljóst að hún hefur annað hvort verið svipt leyfinu síðan, eða skilað því inn sjálf. Heilbrigðisyfirvöld segjast ekki ætla að tjá sig um málefni einstakra lækna.

Helgi Hrafn segir þessi atriði þó engu máli skipta. Aðal atriðið sé að það sem Elísabet hefur verið að segja sé „efnislega rangt.“ Færslan vísar til fréttar Vísis í gærkvöldi þar sem Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknis fer hörðum orðum um gagnrýni Elísabetar á sig og sín störf.

Helgi skrifar:

Þetta er hlutinn sem skiptir máli. Ekki persónan, ekki hvers vegna hún var rekin hvar, hvenær eða hvaða leyfi hún er með, heldur þetta. Að það sem hún segir er efnislega rangt og á skjön við þá vísindalegu þekkingu sem við höfum og getum sýnt fram á.

Færslu Helga má sjá hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Mannbjörg varð þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga

Mannbjörg varð þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga
Fréttir
Í gær

Fleiri nýleg gjaldþrot Ásgeirs – Mörg hundruð milljónir í súginn

Fleiri nýleg gjaldþrot Ásgeirs – Mörg hundruð milljónir í súginn
Fréttir
Í gær

Jóhanna Vigdís fær á baukinn eftir viðtal við Höllu Hrund: „Furðulegar spurningar satt að segja“

Jóhanna Vigdís fær á baukinn eftir viðtal við Höllu Hrund: „Furðulegar spurningar satt að segja“