fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Vara við nýrri tegund netsvika – Töpuðu töluverðum fjárhæðum í ógáti

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 15. maí 2024 13:30

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Neytendasamtökin vara við nýrri tegund netsvika eftir að samtökunum bárust tvö erindi frá félagsmönnum sem lent höfðu í tegund netsvika sem samtökin hafa ekki séð áður.

Í frétt á vef Neytendasamtakanna segir að í báðum tilfellum hafi félagsmennirnir fengið sendar beiðnir um rafræna auðkenningu í símtæki sitt. Auðkenningarbeiðnir voru ekki staðfestar og féllu þar með á tíma. Í kjölfarið fengu einstaklingarnir smáskilaboð með yfirheitinu „Endurheimt, upplýsingar-is.“ Í skilaboðunum mátti finna hlekk sem unnt var að smella á til að fá nánari upplýsingar um þessar beiðnir.

Þegar smellt var á hlekkinn í smáskilaboðunum voru félagsmennirnir báðir beðnir að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum til að nálgast nánari upplýsingarnar. Þar með gátu svikahrapparnir opnað heimabanka í nafni félagsmanna og fengið yfirdráttarheimild sem síðan var stungið undan. Um töluverðar upphæðir var að ræða í báðum tilvikum.

Svikin voru framkvæmd í sitt hvorum bankanum og taldi annar þeirra brotaþola ábyrgan og gerði honum að greiða „skuldina“ við bankann, en hinn bankinn taldi ljóst að um svik væri að ræða og felldi svikaskuldina niður.

Stuldur á rafrænum skilríkjum er ekki nýr af nálinni en þá hafa svikurum tekist að komast yfir bæði símtæki fórnarlamba og PIN- númer. Þessi svik ganga hins vegar út á að fá fólk til að samþykkja auðkenningu í ógáti.

Hvernig á að bregðast við?

Ætíð skal gæta fyllstu varkárni þegar beiðnir um auðkenningu berast í síma og aldrei samþykkja þær nema að vel athuguðu máli. Teljir þú þig í ógáti hafa staðfest auðkenningu með rafrænum skilríkjum er hægt að skoða alla notkun rafrænu skilríkjanna síðustu þrjá mánuði á mitt.audkenni.is og sjá hver hefur beðið um auðkenningu. Þá er einnig ráðlagt að hafa samband við Auðkenni svo fljótt sem auðið er.

Neytendasamtökin brýna fyrir neytendum að sýna aðgát við notkun rafrænna skilríka. Netsvik verða sífellt algengari og aðferðir þróast og breytast. Stundum þarf ekki nema lítið feilspor til að verða fyrir miklu tjóni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt