fbpx
Miðvikudagur 21.maí 2025
Fréttir

Örlagarík leit í Audi-bíl – Missti frelsið, vinnuna og mannorðið

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 10. nóvember 2020 16:18

Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd: DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem sætti gæsluvarðhaldi í 215 daga vegna gruns um fíkniefnasmygl, en var síðan sýknaður af öllum ákærum, höfðaði skaðabótamál á hendur ríkinu þar sem hann krafðist rúmlega 41 milljóna króna.

Málið hófst með því að lögreglu hér á landi bárust upplýsingar frá dönsku tollgæslunni um að grunur væri um að fíkniefni væru í Audi bíl sem var um borð í ferjunni Norrænu á leið til Íslands. Í bílnum fannst mikið magn amfetamínbasa. Þrír aðrir menn voru sakfelldir fyrir smygl en ekki tókst að sanna að fjórði maðurinn, sem hér höfðaði mál, hafi vitað af fíkniefnunum.

Í málflutningi sínum gerir maðurinn grein fyrir því að hann hafi frá fyrsta degi verið mjög samvinnufús við lögreglu og til dæmis veitt henni ótakmarkaðan aðgang að símum sínum og tölvum. Hann hafi ekkert gert til að afvegaleiða lögreglu og verið stöðugur og samkvæmur sjálfum sér í framburði sínum.

Maðurinn segist hafa tapað launatekjum á meðan hann var sviptur frelsi auk þess sem hann og unnusta hans hefðu misst leiguhúsnæði sem þau bjuggu í. Við handtökuna hafi hann nýhafið undirbúning að stofnun fyrirtækisins en gæsluvarðhald og ákæra hefðu komið í veg fyrir þau áform enda mannorð hans í rúst eftir málið.

Í dómnum segir meðal annars:

„Stefnandi telur að hann hafi að ósekju verið bendlaður við umfangsmikið fíkniefnamál og þetta hafi valdið honum, unnustu hans og fjölskyldu álitshnekki sem ekki hafi verið bættur þrátt fyrir að hann hafi verið sýknaður og ekkert fram komið sem bendlað gat hann við málið. Sérstaklega sé þetta bagalegt fyrir stefnanda sem hluta af […]og hafi málið tekið mikið á hann persónulega og fjölskyldu hans.“

Hinn stefndi, íslenska ríkið, hafnaði því að málatilbúnaður gegn manninum hefði verið tilhæfulaus. Þá var því haldið fram að misræmi hefði verið í framburði mannsins í yfirheyrslum hjá lögreglu og með því hefði hann sjálfur stuðlað að gæsluvarðhaldi gegn sér.

Dómurinn féllst ekki á þetta. Studdist hann við ákvæði laga sem heimila að menn hljóti skaðabætur ef þeir hafa sætt lögreglurannsókn og gæsluvarðhaldi ef þeir eru sýknaðir. Þó hafi rannsóknin ekki verið ólögmæt.

Voru manninum dæmdar 7 milljónir króna í skaðabætur.

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Kvalin af verkjum í þrjú ár en VÍS gaf sig ekki og neitaði að borga

Kvalin af verkjum í þrjú ár en VÍS gaf sig ekki og neitaði að borga
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Þekktar systur andmæla Airbnb-frumvarpi Hönnu Katrínar

Þekktar systur andmæla Airbnb-frumvarpi Hönnu Katrínar