fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
Fréttir

Þjófar á ferð á höfuðborgarsvæðinu

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 22. september 2020 06:02

Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan 03.20 í nótt var tilkynnt um rúðubrot í verslun úrsmiðs á Laugavegi. Ekki var farið inn í verslunina en vitni sá tvo menn hlaupa á brott. Á sjötta tímanum í gær var ölvaður maður handtekinn í Kringlunni, grunaður um þjófnað úr verslun. Ætlað þýfi fannst í bakpoka hans.

Klukkan 22 í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot í húsnæði á Kjalarnesi. Ekki að sjá að neinu hafi verið stolið en gerandinn er sagður hafa ekið á kyrrstæða bifreið við húsið.

Á ellefta tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot í tvær bifreiðar við íþróttasvæði í Fossvogshverfi. Einhverju var stolið úr bifreiðunum. Þjófurinn virðist hafa misst farsíma sem fannst á vettvangi.

Á tólfta tímanum í gærkvöldi lentu öryggisverðir í átökum við aðila sem er grunaður um þjófnað úr verslun í Breiðholti. Lögreglan kom á vettvang og afgreiddi málið.

Á tólfta tímanum var tilkynnt um þrjá drengi sem voru að brjóta rúður í strætóskýli. Lögreglan hafði afskipti af einum þeirra og sótti forráðamaður hans hann á lögreglustöð. Tilkynning um málið var send til barnaverndaryfirvalda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

„Ég fór beyglaður út í lífið, með beyglaða sýn á lífið“

„Ég fór beyglaður út í lífið, með beyglaða sýn á lífið“
Fréttir
Í gær

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakar Kirkjugarða Reykjavíkur um að skaða rekstur blómabúða

Sakar Kirkjugarða Reykjavíkur um að skaða rekstur blómabúða
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri Másson segist ekki tala fyrir því að ganga úr EES-samstarfinu

Snorri Másson segist ekki tala fyrir því að ganga úr EES-samstarfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fær ekki að stunda nám á Íslandi – Trúðu ekki að hún hefði verið að lána bróður sínum pening

Fær ekki að stunda nám á Íslandi – Trúðu ekki að hún hefði verið að lána bróður sínum pening
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tekinn með bensínsprengju

Tekinn með bensínsprengju
Fréttir
Fyrir 3 dögum
Vilhjálmur til OK