fbpx
Mánudagur 15.desember 2025
Fréttir

Hægt að fá vottorð upp á að hafa fengið Covid-19

Sóley Guðmundsdóttir
Mánudaginn 17. ágúst 2020 17:42

mynd/landspitali.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Einstaklingar sem hafa fengið veiruna sem veldur sjúkdómnum Covid-19 ættu þrátt fyrir það að fara eftir öllum sóttvarnarreglum og sýna gott fordæmi,“ segir Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður Landlæknis. Kjartan segir að þeir sem hafa sýkst þurfa ekki að sæta tveggja vikna sóttkví umgangist þeir einstakling sem reynist smitaður.

Eins og kom fram í síðustu viku er ekki hægt að veikjast tvisvar af Covid-19. Samkvæmt nýjustu tölum á covid.is hafa 1.888 einstaklingar lokið einangrun af þeim 2.014 sem hafa smitast.

Þeir einstaklingar sem hafa fengið Covid-19 og eru lausir við veiruna geta sóst eftir vottorði sem staðfestir það, samkvæmt hjúkrunarfræðingi á Landspítala. „Hægt er að óska eftir vottorðinu í símtali sem sjúklingur fær frá hjúkrunarfræðingi daginn fyrir útskrift. Þetta vottorð er hægt að nota við komuna til landsins. Þá sleppur viðkomandi við sýnatöku og sóttkví.“ Hjúkrunarfræðingurinn sagði að ekki væri öruggt að hægt væri að nota vottorðið við komuna til annarra landa. Ekki er tekið við vottorðum frá öðrum löndum en Íslandi við landamærin hérlendis.

Frá og með 19. ágúst þurfa allir sem koma til landsins að fara í tvöfalda skimun og fjögurra til fimm daga sóttkví.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Stórtækir þjófar létu greipar sópa á Hornafirði

Stórtækir þjófar létu greipar sópa á Hornafirði
Fréttir
Í gær

Segir ábendingahnapp hjá Borgarholtsskóla notaðan til að koma á framfæri nafnlausu níði um kennara

Segir ábendingahnapp hjá Borgarholtsskóla notaðan til að koma á framfæri nafnlausu níði um kennara
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vegfarandi stórslasaðist eftir að ekið var á hann og hund hans á Langholtsvegi – Ökumaðurinn sýknaður

Vegfarandi stórslasaðist eftir að ekið var á hann og hund hans á Langholtsvegi – Ökumaðurinn sýknaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fékk hroll þegar hún las bréf MAST um mál hundsins Úffa – „Stofnanir verða að sýna mannúð“

Fékk hroll þegar hún las bréf MAST um mál hundsins Úffa – „Stofnanir verða að sýna mannúð“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gluggi kom af stað nágrannaerjum í Garðabæ – Bærinn skammaður fyrir vinnubrögð sín

Gluggi kom af stað nágrannaerjum í Garðabæ – Bærinn skammaður fyrir vinnubrögð sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hestamönnum neitað um aðgengi að Hvaleyrarvatni

Hestamönnum neitað um aðgengi að Hvaleyrarvatni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur mildaði verulega dóm yfir ungum stórsmyglara

Landsréttur mildaði verulega dóm yfir ungum stórsmyglara
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga